bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW 757 V8 350 5.7l MYNDIR BLS 7
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=23886
Page 1 of 10

Author:  BMW_Owner [ Fri 24. Aug 2007 20:54 ]
Post subject:  BMW 757 V8 350 5.7l MYNDIR BLS 7

jæja sælir félagar eins og þið vitið þá er ég gæjinn sem setti 350 v8 vélina í 316 e-36 bmwinn fyrir svolitlu síðan,ég hafði alltaf áætlað mér að klára hann þangað til að vélin fór í 740 BMWinum hjá mér,þannig að næsta verkefni mitt er að rífa vélina úr 740 bílnum + skiptingu og setja 350 vélina með 400 túrbo skiptingu úr e-36inum í 7una
þetta verður aðeins vandaðara project þar sem þetta er svona fágaður krúser en með þessari vél með smá tilfæringum s.s nýjum semi heitum knastás og öðrum heddum þá ætti vélin að skila VEL betur heldur en 4.4l vélin gerði og torka soldið mikið meira.
það sem er gott í þessu er að ég get notað pústið,vökvastýrisdæluna,vatnskassann,cruise controlið (i think)og inngjöfina + startið með þessu ætti 7an að verða kraftmesta 7-linan e-38 á landinu en ég ætla ekki að staðfesta það þar sem ég veit ekki hvað 7an gerir en vonin er góð og ég held í hana 8)
rifrildið byrjar á morgun


í dag er skiptingin úr 7uni til sölu en það er steptronic(með + - ) skiptingu
og allir boddy hlutir úr e-36 bmwinum en hann er heill að öllu leiti :wink:
Wish me luck :lol:

Kv.BMW_Owner
Einar Torfi Einarss.

Author:  Angelic0- [ Fri 24. Aug 2007 21:01 ]
Post subject: 

ufffff, hvad meinaru????

Author:  IceDev [ Fri 24. Aug 2007 21:05 ]
Post subject: 

Sá þessa sjöu áðan hérna í flötunum.....for fucks sake...

Ekki gera eitthvað svoleiðis crap, finna bara original vél og hafa þetta flott stöff

Author:  Benzari [ Fri 24. Aug 2007 21:16 ]
Post subject: 

Af hverju virkar babelfish ekki á svona texta :evil:








:twisted:

Author:  IvanAnders [ Fri 24. Aug 2007 21:22 ]
Post subject: 

350 í E36 er kúl!

350 í E38 er ekki kúl!


:evil:

Author:  jon mar [ Fri 24. Aug 2007 21:23 ]
Post subject: 

Að setja eitthvað annað en M62 í þennann bíl er hryðjuverk :?

Author:  BMW_Owner [ Fri 24. Aug 2007 21:23 ]
Post subject: 

málið er bara einfaldlega það að vélin sem er í honum var keypt á 300.000kr
og eitthvað hefur ekki verið rétt þar sem þessi vél á ekki að vera keyrð nema 180þús,eina sem mér dettur í hug er slæm meðferð (frá öðrum en mér) en ég er ekki búinn að komast alveg að því hvað fór í vélinni en miðað við hljóðin þá er ég EKKI!! vongóður :wink:
en annnars vegar þá er ég engan vegin að fara eyðileggja bílinn fyrir ykkur BMW hnetunum ég ætla mér að setja vélina í með sem minnstum tilfæringum þannig að ef seinna ég vil gera eitthvað annað þá er það í boði þar sem bílinn mun bjóða upp á að setja bmw vél aftur í hann:wink:
ætli ég skelli í hann vetnisvél eftir nokkur ár þar sem allt bensín og olía er að klárast :lol:

Author:  jon mar [ Fri 24. Aug 2007 22:00 ]
Post subject: 

bara að nota hæfileikana og laga það sem er að :wink:

Author:  arnibjorn [ Fri 24. Aug 2007 23:23 ]
Post subject: 

IvanAnders wrote:
350 í E36 er kúl!

350 í E38 er ekki kúl!


:evil:

Author:  Lindemann [ Fri 24. Aug 2007 23:29 ]
Post subject: 

ekkert að þessu........um að gera að leika sér eitthvað með þetta.

Ekki það, ég myndi frekar nota nýrri gm mótor, s.s. LS7 :D ......en fyrst þessi er til, afhverju ekki að prófa þetta.

Svo geturu bara reddað þér S62 í þetta þegar tækifæri gefst.

Author:  maxel [ Fri 24. Aug 2007 23:48 ]
Post subject: 

jon mar wrote:
Að setja eitthvað annað en M62 í þennann bíl er hryðjuverk :?
s62

Author:  arnibjorn [ Fri 24. Aug 2007 23:56 ]
Post subject: 

maxel wrote:
jon mar wrote:
Að setja eitthvað annað en M62 í þennann bíl er hryðjuverk :?
s62

](*,)

Author:  maxel [ Fri 24. Aug 2007 23:57 ]
Post subject: 

arnibjorn wrote:
maxel wrote:
jon mar wrote:
Að setja eitthvað annað en M62 í þennann bíl er hryðjuverk :?
s62

](*,)
hvað?

Author:  Epicurean [ Sat 25. Aug 2007 00:09 ]
Post subject: 

maxel wrote:
jon mar wrote:
Að setja eitthvað annað en M62 í þennann bíl er hryðjuverk :?
s62


Það er eins og gefa mömmu sinni sílikon :?

Author:  BMW_Owner [ Sat 25. Aug 2007 12:48 ]
Post subject: 

jæja ég bjóst nú alveg við því að ég fengi mismunandi viðbrögð en málið er það að ég hef alveg tækin og möguleikana að gera við þessa vél en satt að segja þá nenni ég því ekki því að svo virðist sem að það hefur brotnað ventill (svo virðist ekki komið á hreint) og vélin situr pikkföst fram og tilbaka og gerir ekkert
1.þessi vél gekk aldrei vel
2.skilaði engan veginn aflinu sem hún átti að skila útaf tölvuveseni og fl.
3.hún lak hinu og þessu mikið fyrst en lítið í það síðasta
4.þetta er alltof drulluflókið tölvukerfi til að það sé nokkur leið að halda þessu gangandi nema með áskrift hjá bogl.
og ég er ekki orðinn efnaður enn :wink: þannig á meðan mig langar að keyra um á BMW og get ekki keypt vélar á 300+þús og ég hef aðstöðu og handlagni til að gera við sjálfur þá finnst mér ekkert að því að láta bílinn ganga heldur en að láta hann standa í einhver ár þangað til að ég fæ vél á góðan prís eða sel hann fyrir slikk .
s.s bílinn verður ekkert verri það mun öll tæki vinna í bílnum og allt verður eins að utan eina sem er að bílinn verður 5.7l og margfalt meira afl og miklu einfaldari(þannig bílinn á mjög bágt með að bila verða stopp)

4.4l M62 V8 BMW vél er með 200víra+ til að ganga
5.7l 350 V8 chevrolet vél með 3 víra (startið,hleðslan,háspennikeflið)
eina vesenið sem ég sé hér er hvar ég á að setja hina 197vírana :lol:

kv.BMW_Owner
Einar Torfi Einarss.

Page 1 of 10 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/