Page 1 of 1

Ljósavandamál í E34

PostPosted: Fri 10. Aug 2007 22:53
by Saxi
Sælir

Fór hjá mér pera (var handónýt) í morgun sem er sossum ekki í frásögur færandi. En seinna í dag kom aftur upp "low beam" melding í mælaborðið og sama pera farin (sýndist ekki ónýt í þetta skiptið). Búinn að prufa að setja nýja peru í en ekkert gerist.

Getur þetta verið klassíska E34 LKM (light control module) vandamálið eða er mér að yfirsjást eitthvað?

Hversu mikið mál er að taka LKM úr og lóða?

kveðja
Saxi

PostPosted: Fri 10. Aug 2007 23:41
by jon mar
klassískt LKM vandamál heyrist mér.

Prófaðu að taka lkm kubbinn úr, beita hann smávægilegu ofbeldi með að berja honum í lófann á þér. Gæti tekið nokkur skipti áður en hann virkar. Færð allavega staðfestingu hvort rely draslið sé á útleið. Sveitó aðferð ég veit :lol:

Þægilegast er að versla bara replacement á ebay.de eða .co.uk.
LKM-B eða lkm-L, ætti ekki að skipta máli.

Hef lesið að lkm-L sé með þann skemmtilega fítus að segja þér frá opnum hurðum og eitthvað svoleiðis extra.

B = Basic
L = Luxury

að taka kubbinn úr er ekkert mál, þegar þú opnar öryggjaboxið frammí húddi, þá er þetta stóri langi svarti sem er næstur bílstjórahliðinni.

Ef þú vilt prófa að gera við, þá er linkur hér.....
http://bmwe34.net/e34main/maintenance/e ... al/LKM.htm


Ég reyndi þetta, en mitt rely er bara ónýtt þannig að það er bara að gefast upp smásaman.

PostPosted: Sat 11. Aug 2007 10:40
by Saxi
Takk fyrir þetta, ég opnaði þetta áðan en gat ekki fundið neitt að lóðningum.

Ég þyrfti að fá að prufa eitt svona stykki í lagi til að vera viss um að þetta sé málið.

Tók líka eftir því áðan að ljósin inni í bílnum slokkna ekki þó að ég loki hurðunum (já rétt stillt á takkanum)

Á einhver svona stykki á lausu eða væri til í að leyfa mér að prufa sitt?

Kveðja
Saxi

PostPosted: Sat 11. Aug 2007 12:36
by jon mar
getur líka prófað þetta með að volt mæla ljósatengið. Þegar slökt er á ljósinu á að vera ca 9.5v straumur á því til að checka perur án þess að kveikja. 12v með kveikt.

Eins er nær ómögulegt að sjá lélegar lóðningar með berum augum :)


Það er alveg jafn líklegt að þetta séu skemmdir vírar hjá þér, svona þar sem e34 eru ekki beint nýjir af nálinni :wink:

PostPosted: Sat 11. Aug 2007 13:04
by Hlynzi
jon mar wrote:getur líka prófað þetta með að volt mæla ljósatengið. Þegar slökt er á ljósinu á að vera ca 9.5v straumur á því til að checka perur án þess að kveikja. 12v með kveikt.

Eins er nær ómögulegt að sjá lélegar lóðningar með berum augum :)


Það er alveg jafn líklegt að þetta séu skemmdir vírar hjá þér, svona þar sem e34 eru ekki beint nýjir af nálinni :wink:


9,5 volt spenna heitir það.
Kaldlóðningar sjást örsjaldan, myndi nú bara græja lóðbolta, tinsugu og nýjan vír og fara yfir allt brettið.

PostPosted: Sat 11. Aug 2007 13:13
by jon mar
Hlynzi wrote:
jon mar wrote:getur líka prófað þetta með að volt mæla ljósatengið. Þegar slökt er á ljósinu á að vera ca 9.5v straumur á því til að checka perur án þess að kveikja. 12v með kveikt.

Eins er nær ómögulegt að sjá lélegar lóðningar með berum augum :)


Það er alveg jafn líklegt að þetta séu skemmdir vírar hjá þér, svona þar sem e34 eru ekki beint nýjir af nálinni :wink:


9,5 volt spenna heitir það.
Kaldlóðningar sjást örsjaldan, myndi nú bara græja lóðbolta, tinsugu og nýjan vír og fara yfir allt brettið.


fyrirgefðu kútur :lol:

Var nývaknaður og góður þannig ég feilaði algjörlega á hugtökunum :oops: