Samlæsingar í E34

Posted:
Wed 01. Aug 2007 12:37
by gunnar
Veit einhver ástæðuna af hverju mér tekst ekki að opna afturhurðarnar í E34 bílnum hjá mér. Þær opnast ekki þegar maður snýr lyklinum, og ég næ heldur ekki að draga takkann upp.
Frekar skrýtið að ég get ekki opnað þær manually, þ.e.a.s dregið takkann upp.

Posted:
Wed 01. Aug 2007 12:39
by Lindemann
fastir læsingamótorar.
þarft bara að ná hurðaspjaldinu úr og losa mótorinn, þá geturu opnað og skipt um mótor.

Posted:
Wed 01. Aug 2007 12:41
by gunnar
Eru þeir fastir báðu megin ?!?!

Posted:
Wed 01. Aug 2007 13:32
by gunnar
Einnig líka, er ekkert mál að ná spjaldinu af þó ég geti ekki opnað hurðina ?

Posted:
Wed 01. Aug 2007 18:51
by jon mar
það er soldið maus að ná hurðaspjaldinu af, en mögulegt þó. Líklega þægilegast að taka afturbekkinn úr. Það eru öruglega einhverstaðar diy info að finna um þetta. Prófaðu
http://www.bmwe34.net/E34main.htm

Posted:
Wed 01. Aug 2007 20:01
by Helgi M
jon mar wrote:það er soldið maus að ná hurðaspjaldinu af, en mögulegt þó. Líklega þægilegast að taka afturbekkinn úr. Það eru öruglega einhverstaðar diy info að finna um þetta. Prófaðu
http://www.bmwe34.net/E34main.htm
Ég gerði hér smá info fyrir svolitlu síðan,
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=17768&highlight=
Sést þarna aðeins fyrir neðan fyrsta innlegg