bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Ræsivandamál E39 540 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=23385 |
Page 1 of 1 |
Author: | Throstur [ Thu 26. Jul 2007 21:43 ] |
Post subject: | Ræsivandamál E39 540 |
Ég á þennan fína E39 540 árg 1996 (gamli hans Sæma) en hann hefur verið að stríða mér undanfarnar vikur með að vera lengi að fara í gang. Áður en ég byrja þá ætla ég að taka fram að ég hef ekki hundsvit á bílum né viðgerðum ![]() Allavegana, vandamálið er að þegar ég er að setja hann í gang, þá startar hann og startar (oftast í 3-6 sekúndur), fer alltaf í gang á endanum en hljómar eins og hann sé ekki að fá nóg bensín til að komast í gang. Síðan er gangurinn frekar ójafn þar til ég gef honum inn smá bensín og þá lagast gangurinn. Þegar bíllinn er í keyrslu er ekkert að, þetta gerist bara við ræsingu. Ef bíllinn hefur staðið lengur en 10-15 mínútur frá því hann var í akstri þá kemur vandamálið upp. Ef minna en 10 mínútur líða frá því að ég drep á honum þá er hann ALLTAF góður í gang og vandamálið kemur ekki upp. Bíllinn hefur farið á verkstæði, fyrst til TB og síðan til B&L. Tölvan gefur ekki upp neina bilanakóða. TB skipti um kerti, bensínsíu og bensíndælu en á endanum gáfust þeir upp þar sem þeir fundu ekki út úr þessu. B&L tóku bílinn inn og héldu að hann væri kominn í lag, læt hér fylgja með lýsingu frá þeim: "Lesið af bílnum og voru engir bilanakóðar fyrir vélina og var farið yfir öll gildi og var ekkert að vinna að, síðan var tengdur bensínþrýsingsmælir við kerfið og voru gerðar nokkrar tilraunir og var þrýstingur alltaf eðlilegur en fellur þegar hann stendur í svolítinn tíma og þegar hann fer í gang gekk hann ójafnt eins og að hann fengi of mikið bensín og voru spíssarnir losaðir upp og athugað hvort læku og var það ekki. Sett saman aftur síðan voru gerðar tilraunir á að aftengja hluti og prófa hann. Enning athuga neista og spíssa og fór það allt í gang strax. Prófað að skipta um sveifarásskynjara og bíllinn prófaður mörgum sinnum og er allt í lagi núna." Ef allt væri í lagi þá væri ég ekki að skrifa þessar línur ![]() Ég ætla að taka það fram að ég er ekki að setja út á þjónustu hvorki TB né B&L. Mig langar bara að fá þetta í lag! Ef einhver hefur einhverjar hugmyndir þá er ég "all ears". Ég hef þó enga kunnáttu né aðstöðu til að gera neitt sjálfur þannig að ef einhver telur sig vita hvað sé að gerast og geti eitthvað kíkt á þetta fyrir mig þá er ég til í að skoða það, gegn sanngjarnri greiðslu auðvitað. Hjálp! ![]() |
Author: | crashed [ Thu 26. Jul 2007 21:56 ] |
Post subject: | |
ég er með 325 E36 m50 mótor 91 árgerð og á í nákvæmlega sama vandamáli þannig að ef þú heirir eithvað eða nærð að laga þetta mátu láta mig vita hvað var í gangi |
Author: | saemi [ Thu 26. Jul 2007 22:35 ] |
Post subject: | |
Þetta hljómar rosalega mikið eins og "vapour lock", þ.e. að bensínið nái að gufa upp í leiðslunum að spíssunum vegna hita, mynda þannig tappa sem fer síðan þegar dælan er búin að ganga í töluverðan tíma. En góð spurning hvað þetta sé í raun og veru. Mig myndi gruna sterklega að hann nái ekki bensíni inn á sig, en góð spurning hvað þetta sé. Eitt sem mér dettur í hug fljótlegt er með kertin. Hefur þú nokkuð skipt um kerti síðan þú fékkst bílinn? Ef ekki þá myndi ég prufa það fyrst, það gæti mögulega verið vandamálið! |
Author: | Throstur [ Thu 26. Jul 2007 22:50 ] |
Post subject: | |
Það er búið að skipta um kerti, var gert hjá TB. |
Author: | slapi [ Fri 27. Jul 2007 17:27 ] |
Post subject: | |
Það er rosalega erfitt að sjá út hvað þetta er vegna skorts á upplýsingum sem að koma að þessu máli. |
Author: | Hlynzi [ Fri 27. Jul 2007 17:41 ] |
Post subject: | |
Hefuru hreinlega prófað einhver efni sem eiga að hreinsa spíssa og bensínleiðslur ? |
Author: | saemi [ Fri 27. Jul 2007 18:06 ] |
Post subject: | |
slapi wrote: Það er rosalega erfitt að sjá út hvað þetta er vegna skorts á upplýsingum sem að koma að þessu máli.
![]() Mér fannst hann einmitt lýsa þessu nokkuð vel. |
Author: | jon mar [ Fri 27. Jul 2007 18:24 ] |
Post subject: | |
er ekki bara staðan sú að það er einhver einstreimisloki á leiðinni, og hann er bilaður. Hugsanlegt sé svoleiðis í bílnum þá fari þrýstingurinn af kerfinu smá saman eftir að dælan hættir að dæla. Veit að þetta vandamál hefur verið til staðar í 535i e34, veit ekki með aðra bmw. í E34 er þetta staðsett einhverstaðar í bensíndælu-unitinu ofan í tanki. Í því tilfelli hafa menn staðsett annann einstreymisloka eins nálægt tanknum og kostur er á. Aðgerð sem ég hugsa að ég verði að framkvæma í framtíðinni, þar sem minn hagar sér ekkert ósvipað. |
Author: | slapi [ Sat 28. Jul 2007 19:45 ] |
Post subject: | |
jon mar wrote: er ekki bara staðan sú að það er einhver einstreimisloki á leiðinni, og hann er bilaður.
Hugsanlegt sé svoleiðis í bílnum þá fari þrýstingurinn af kerfinu smá saman eftir að dælan hættir að dæla. Veit að þetta vandamál hefur verið til staðar í 535i e34, veit ekki með aðra bmw. í E34 er þetta staðsett einhverstaðar í bensíndælu-unitinu ofan í tanki. Í því tilfelli hafa menn staðsett annann einstreymisloka eins nálægt tanknum og kostur er á. Aðgerð sem ég hugsa að ég verði að framkvæma í framtíðinni, þar sem minn hagar sér ekkert ósvipað. Það á ekki að gera til þó að þrýstingurinn fari af kerfinu , en spurningin er hvort að loft fari inn á kerfið. Ef að ekkert loft er á kerfinu nær dælan strax að byggja upp þrýstingin ef allt er eðlilegt. Bensínþrýstingur fellur alltaf þegar drepið er á, oft er það niðrí 0.5 bar sirka og er eðlilegur hvíliþrýstingur á kerfi. |
Author: | jon mar [ Sun 29. Jul 2007 12:41 ] |
Post subject: | |
slapi wrote: jon mar wrote: er ekki bara staðan sú að það er einhver einstreimisloki á leiðinni, og hann er bilaður. Hugsanlegt sé svoleiðis í bílnum þá fari þrýstingurinn af kerfinu smá saman eftir að dælan hættir að dæla. Veit að þetta vandamál hefur verið til staðar í 535i e34, veit ekki með aðra bmw. í E34 er þetta staðsett einhverstaðar í bensíndælu-unitinu ofan í tanki. Í því tilfelli hafa menn staðsett annann einstreymisloka eins nálægt tanknum og kostur er á. Aðgerð sem ég hugsa að ég verði að framkvæma í framtíðinni, þar sem minn hagar sér ekkert ósvipað. Það á ekki að gera til þó að þrýstingurinn fari af kerfinu , en spurningin er hvort að loft fari inn á kerfið. Ef að ekkert loft er á kerfinu nær dælan strax að byggja upp þrýstingin ef allt er eðlilegt. Bensínþrýstingur fellur alltaf þegar drepið er á, oft er það niðrí 0.5 bar sirka og er eðlilegur hvíliþrýstingur á kerfi. Var bara að koma með hugmynd, svona að share-a bara því sem maður hefur rekist á. |
Author: | ömmudriver [ Sun 29. Jul 2007 15:07 ] |
Post subject: | |
jon mar wrote: er ekki bara staðan sú að það er einhver einstreimisloki á leiðinni, og hann er bilaður.
Hugsanlegt sé svoleiðis í bílnum þá fari þrýstingurinn af kerfinu smá saman eftir að dælan hættir að dæla. Veit að þetta vandamál hefur verið til staðar í 535i e34, veit ekki með aðra bmw. í E34 er þetta staðsett einhverstaðar í bensíndælu-unitinu ofan í tanki. Í því tilfelli hafa menn staðsett annann einstreymisloka eins nálægt tanknum og kostur er á. Aðgerð sem ég hugsa að ég verði að framkvæma í framtíðinni, þar sem minn hagar sér ekkert ósvipað. Þetta vandamál þekkist líka í E32 735 og gerist alltaf þegar maður má minnst við ![]() |
Author: | Throstur [ Sun 29. Jul 2007 16:10 ] |
Post subject: | |
Sælir og takk fyrir svörin, Ég hef ekki prófað nein hreinsiefni en það má svosem prófa það, hvaða efni eða efnum mælið þið með? Annars er bíllinn á leiðinni til B&L núna á miðvikudaginn, ég er bara orðinn þreyttur á þessu og langaði til að varpa þessu til ykkar svona ef þið snillingarnir hefðu eitthvað til málanna að leggja. Endilega ef þið hafið eitthvað meira að segja eða ef ég get prófað einhverja einfalda hluti sjálfur, að láta vita ![]() |
Author: | Bjarki [ Sun 29. Jul 2007 17:17 ] |
Post subject: | |
mæla bensínþrýstingsfall er það fyrsta sem maður myndi gera í þessu tilfelli. Sjá bensínþrýstingsfallið á ákv. tíma, nokkrum klst. Ef hann fellur þá getur þetta verið eins og menn hafa bent á fuel pressure regulator'inn, stundum er einstefnuloki í dælunni, svo getur verið að það leki smá með spíss, þó maður finni enga lykt. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |