bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

M20B25
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=23341
Page 1 of 2

Author:  Axel Jóhann [ Tue 24. Jul 2007 14:43 ]
Post subject:  M20B25

Er að skipta um heddpakkningu og ventlastilla í leiðinni, hvernig er best að rífa þetta úr?





Kv. Axel Jóhann.

Author:  Axel Jóhann [ Tue 24. Jul 2007 17:00 ]
Post subject: 

Einhver? Ég er að fara taka tímareimina af.

Author:  Alpina [ Tue 24. Jul 2007 17:53 ]
Post subject: 

Afhverju ertu að gera eitthvað sem þú hefur enga þekkingu né reynslu af

ps.... sterkur leikur að þvo vélasalinn áður

Author:  Axel Jóhann [ Tue 24. Jul 2007 18:25 ]
Post subject: 

Maður lærir ekki nema prófa þetta, en ég er búinn að taka heddið, soggrein og pústgreinar af. Þetta gekk bara vel. :D

Author:  Alpina [ Tue 24. Jul 2007 18:38 ]
Post subject: 

Axel Jóhann wrote:
Maður lærir ekki nema prófa þetta, en ég er búinn að taka heddið, soggrein og pústgreinar af. Þetta gekk bara vel. :D


Á réttum tíma,, eða bara tókstu þetta af

Author:  jon mar [ Tue 24. Jul 2007 18:47 ]
Post subject: 

Axel er nú búinn að vera að fikta í bílum í soldinn tíma, þannig hann ætti nú að kunna að halda á verkfærum.

Stundum finnst mér koma soldinn hroki fram í athugasemdunum hjá þér Sveinbjörn, en það er kannski bara miskilningur eða kaldhæðnislegur ritstíllinn.

En hvað svona verk varðar, að taka þetta í sundur skýrir sig mjög vel sjálft. Byrjar á að hreinsa frá allt drasl á snyrtilegan máta, tekur síðan þetta í sundur. Enging geimflaugavísindi við það.

Author:  Axel Jóhann [ Tue 24. Jul 2007 18:58 ]
Post subject: 

Neibb, þetta skýrði sig allt sjálft, mesta vesenið var að fatta hvernig ég losaði eitt plögg sem fór í fuel railið. :lol: Svo komst ég að því að maður gat tekið svona plastró af og þá var tengið laust. Hendi inn myndum á morgun.

Author:  ///M [ Tue 24. Jul 2007 19:07 ]
Post subject: 

gott að stilla tíma áður en rifið er í sundur.. annars er þetta nokkuð straight forward

Author:  Lindemann [ Tue 24. Jul 2007 20:11 ]
Post subject: 

fínt að æfa sig að tíma inn þegar þú setur saman aftur :wink:

mundu bara eftir því að athuga hvort hún sé ekki á réttum tíma ´áður en þú setur í gang :lol:

Author:  Alpina [ Tue 24. Jul 2007 20:59 ]
Post subject: 

jon mar wrote:
Axel er nú búinn að vera að fikta í bílum í soldinn tíma, þannig hann ætti nú að kunna að halda á verkfærum.

Stundum finnst mér koma soldinn hroki fram í athugasemdunum hjá þér Sveinbjörn, en það er kannski bara miskilningur eða kaldhæðnislegur ritstíllinn.

En hvað svona verk varðar, að taka þetta í sundur skýrir sig mjög vel sjálft. Byrjar á að hreinsa frá allt drasl á snyrtilegan máta, tekur síðan þetta í sundur. Enging geimflaugavísindi við það.


Ef þetta er svona .. easy hvað er vandamálið hjá ..matta

Author:  jon mar [ Tue 24. Jul 2007 21:19 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
jon mar wrote:
Axel er nú búinn að vera að fikta í bílum í soldinn tíma, þannig hann ætti nú að kunna að halda á verkfærum.

Stundum finnst mér koma soldinn hroki fram í athugasemdunum hjá þér Sveinbjörn, en það er kannski bara miskilningur eða kaldhæðnislegur ritstíllinn.

En hvað svona verk varðar, að taka þetta í sundur skýrir sig mjög vel sjálft. Byrjar á að hreinsa frá allt drasl á snyrtilegan máta, tekur síðan þetta í sundur. Enging geimflaugavísindi við það.


Ef þetta er svona .. easy hvað er vandamálið hjá ..matta


mátt nú ekki rjúka í vörn alveg um leið og eitthvað sagt :roll: Kemur því ekki nokkurn skapaðan hlut við hvað vandamálið hjá Matta er. Mér finnst skína bara í gegn í mörgum af þessum "tech help" skrifum þínum hvað þér finnist aðrir vera að eyða tíma sínum í vitleysu með að reyna sjálfir að gera eitthvað. Ég lýt hinsvegar á að menn eiga að reyna eins mikið sjálfir og frekast er unt, annars læra þeir ekkert. Held meira að menn séu að leyta að hjálp og ábendingum um eitthvað sem aðrir hafa rekið sig á í stað gagnrýni.

Hélt alltaf að tech hlutar á spjöllum væru fyrir menn að spyrja að lausnum við vandamálum en ekki vera með aðdróttanir að verkhæfni manna.

Author:  lulex [ Tue 24. Jul 2007 21:26 ]
Post subject: 

1-0.. allveg að koma hálfleikur.

Author:  Alpina [ Tue 24. Jul 2007 21:26 ]
Post subject: 

Hann byrjaði að spurja um hjálp,, ALVEG eins og hann vissi ekkert..

Ég er enginn snillingur í þessu ,,

ÞESSVEGNA HEF ÉG ÞURFT AÐ BORGA FYRIR KUNNÁTTU ANNARA MEÐ
PENINGUM

Author:  crashed [ Tue 24. Jul 2007 21:27 ]
Post subject: 

ég ætla ekki að dæma um það hvort hann sé hrokafullur eða ekki en menn þurfa helst að hafa eða vita eithvað hvað þeir eru ef þeir ætla sér að fygta eithvað í kryngum tímakeðjurnar eða reymar á bílum þar sem þetta getur orsakað ónítan mótor bara með smá skekju á tíma þar sem þetta er nú ekki boxer mótorarnir. gerði við mótor hjá félaga mínum sem hann sleit tímareim í og þegar ég ætlaði að stilla tíman þá fékk ég leiðbeiningar frá b&l á einhverjum 12 blaðsíðum (sem ég fór svo ekki eftir) hehe

Author:  jon mar [ Tue 24. Jul 2007 21:32 ]
Post subject: 

menn náttúrlega verða að vanda sig mjög og afla sér einsmikilla upplýsinga og mögulegt er. Það hefur aldrei sakað að spyrja ef maður er efins.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/