Page 1 of 1

Spurning í sambandi við tölvu í E32

PostPosted: Thu 19. Jul 2007 18:03
by ReCkLeSs
Sælir, var að pæla hvort eitthver ykkar nördana gæti sagt mér hvað það þýðir ef það kemur upp"ORA 3:59PM" í tölvunni hjá mér á 750i 92"?

PostPosted: Fri 20. Jul 2007 07:55
by Einsii
hehe.. klukkan sýnist mér bara,

PostPosted: Fri 20. Jul 2007 08:12
by IceDev
Það vantar baunir á vatnskassann

Image

Færð þetta í Hagkaup

PostPosted: Fri 20. Jul 2007 08:40
by elli
Einsii wrote:hehe.. klukkan sýnist mér bara,

Akkúrat breyttu bara túngumálinu á tölvunni og þá færðu:
Uhr: 3.39 Þýska
Hour: 3.39 Enska...
og svo framvegis.

PostPosted: Fri 20. Jul 2007 19:00
by Hlynzi
Klukkustund á Ítölsku.

PostPosted: Fri 20. Jul 2007 19:02
by arnibjorn
Hlynzi wrote:Klukkustund á Ítölsku.


Nú er það??? :lol:

PostPosted: Fri 20. Jul 2007 19:19
by Hlynzi
arnibjorn wrote:
Hlynzi wrote:Klukkustund á Ítölsku.


Nú er það??? :lol:


Hmm nei ekki alveg, þetta þýðir núna samkv. einhverri vefsíðu. Langar að læra ítölsku :p

En ég er ekki alveg 100% á þessu, þetta virðist vera þokkalega rétt.

PostPosted: Fri 20. Jul 2007 22:56
by ReCkLeSs
sé alveg að þetta er klukka en veit eitthver afhverju þetta pípir og birtist upp annað slagið?

PostPosted: Sat 21. Jul 2007 01:04
by Geirinn
Í einu tvö skiptin sem ég man eftir bípi úr svona tölvum þá er það annaðhvort vegna þess að útihitinn er í 3° C eða vegna þess að það er búið að setja LIMIT á hraða, þ.e. tölvan lætur þig vita þegar þú nærð ákveðnum hraða.

PostPosted: Sat 21. Jul 2007 04:33
by jon mar
mig minnir að það sé líka hægt að stilla þetta svo þetta pípi 5min í heila tímann or sum.....

Það er þá svona "hátalaramerki" í einu horninu, man ekki hvernig það er tekið af.

PostPosted: Sat 21. Jul 2007 11:07
by Lindemann
velur klukkuna í tölvunni og svo ýtiru á set.........minnir að það hafi verið svoleiðis.

PostPosted: Sat 21. Jul 2007 14:24
by jon mar
annað hvort það eða C/F hnappurinn

PostPosted: Sat 21. Jul 2007 22:38
by ReCkLeSs
takk fyrir.

PostPosted: Sat 21. Jul 2007 23:25
by BMW_Owner
HAHA vantar baunir á vatnskassann :lol: :lol: :lol:
ORA 4Ya´ll