Page 1 of 2
AC í E39 og cruise control

Posted:
Thu 12. Jul 2007 21:51
by 318is
Loftkælingin hjá mér er hætt að kæla. Líklegast vantar bara freon eða hvað það sem er á þessu kerfi.
Getur maður reddað þessu sjálfur eða þarf maður að fara enn eina ferðina í TB til að bæta á þetta? Veit einhver ca. kostnaðinn við þetta?
Hræðilegt að hafa loftkælinguna ekki í lagi í þessum hita.
Annað, hefur einhver lent í vandræðum með cruise controlið í E39? Það er svona þriggja arma ///M stýri í bílnum hjá mér, ég hef prófað öll trick til þess að reyna að virkja það hef ekki fengið það til að virka.


Posted:
Thu 12. Jul 2007 22:01
by JonHrafn
hefuru aldrei fengið CC til að virka eða hætti það bara að virka?

Posted:
Thu 12. Jul 2007 23:13
by 318is
Ég er búinn að eiga bílinn í 1 ár og það það hefur ekki virkað á þeim tíma. Að sögn fyrri eiganda virkaði það. Ég trúi ekki að ég sé svona mikill klaufi að ég klúðri þessu alltaf


Posted:
Thu 12. Jul 2007 23:42
by ömmudriver
318is wrote:Ég er búinn að eiga bílinn í 1 ár og það það hefur ekki virkað á þeim tíma. Að sögn fyrri eiganda virkaði það. Ég trúi ekki að ég sé svona mikill klaufi að ég klúðri þessu alltaf

Bíllinn verður að vera á inngjöf þegar cruisið er sett á og á meira en 40 km/h.

Posted:
Fri 13. Jul 2007 00:07
by ValliFudd
ömmudriver wrote:318is wrote:Ég er búinn að eiga bílinn í 1 ár og það það hefur ekki virkað á þeim tíma. Að sögn fyrri eiganda virkaði það. Ég trúi ekki að ég sé svona mikill klaufi að ég klúðri þessu alltaf

Bíllinn verður að vera á inngjöf þegar cruisið er sett á og á meira en 40 km/h.
Á mínum er nóg að vera á meira en 40 km hraða.. skiptir engu hvort ég er með fótinn á bensíngjöfinni eða ekki


Posted:
Fri 13. Jul 2007 07:25
by JonHrafn
Ef þú ert á ferð þá ýtiru á takkann sem mig minnir að standi á I/O , kveikir á cruisinu, síðan er annar takki með litlum hraðamæli, hann stillir á þann hraða sem þú ert á, síðan + og - til að breyta hraða. Misjafnt hvort þú þurfir að halda niðri + og - til að breyta eða bara ýta og sleppa
Vona að þetta hjálpi eitthvað

Posted:
Fri 13. Jul 2007 08:29
by Daníel
Á mínum bíl þarf ég að ýta á takka til að kveikja á krúsinu og ýta svo á + takkann til að festa hraðann. Takkinn með litla hraðamælinum er svo til að koma mér aftur á þann hraða sem ég var með stilltan inn ef ég þarf að bremsa eða eitthvað slíkt.

Posted:
Fri 13. Jul 2007 09:23
by ValliFudd
Þið flækið þetta alltof mikið
Hjá í E46 mínum ýti ég nú bara beint á + takkann.. Þá kviknar á þessu öllu og cruise komið í gang.. 1 takki.. Og það 2 hlutir sem ekki má gera á meðan... vera undir 40 eða standa á bremsunni..


Posted:
Fri 13. Jul 2007 09:44
by Daníel
ValliFudd wrote:Þið flækið þetta alltof mikið
Hjá í E46 mínum ýti ég nú bara beint á + takkann.. Þá kviknar á þessu öllu og cruise komið í gang.. 1 takki.. Og það 2 hlutir sem ekki má gera á meðan... vera undir 40 eða standa á bremsunni..

Er nú ekkert mikið flóknara hjá mér, bara einn auka-takki til að krús takkarnir í stýrinu virki.


Posted:
Fri 13. Jul 2007 11:58
by Schulii
KLyX wrote:Á mínum bíl þarf ég að ýta á takka til að kveikja á krúsinu og ýta svo á + takkann til að festa hraðann. Takkinn með litla hraðamælinum er svo til að koma mér aftur á þann hraða sem ég var með stilltan inn ef ég þarf að bremsa eða eitthvað slíkt.
Besta og einfaldasta útskýringin að mínu mati!!
Ég átti E46 og þar var EKKI nóg að ýta bara beint á + takkann!
Þurfti fyrst að kveikja á cruise-inu með því að ýta á I/O eins og á E39 bílnum mínum núna.

Posted:
Fri 13. Jul 2007 12:18
by JonHrafn
já ég var að rugla með hraðamælatakkan, hann er að sjálfsögðu til að fara aftur á stillta hraðan :þ

Posted:
Fri 13. Jul 2007 13:26
by ValliFudd
En með Aircon, mér finnst nú ekkert koma neitt sérstaklega kalt hjá mér.. Má vera að það sé eitthvað í gangi þar.. Eru einhverjir simple hlutir sem hægt er að checka á ef ACC virkar ekki sem skildi.. Það heyrist hærra þegar ég ýti á takkann en það kemur ekkert kaldara..

Posted:
Fri 13. Jul 2007 15:16
by Schulii
tjah.. er það ekki bara freon sem þarf að bæta á?
Hefur alltaf komið ansi kalt í þeim bílum sem ég hef átt með aircon

Posted:
Fri 13. Jul 2007 16:49
by Berteh
Ískallt í mínum E46 er með AC'ið á alla daga þegar er sól


Posted:
Fri 13. Jul 2007 16:52
by slapi
ég held að það sé nú R134a á öllum kerfum í dag og búið að vera í nokkur ár , Freon er út.
Það er hægt að láta skipta um á þessu hjá
Frystikerfi ehf
Viðarhöfða 6
110 Reykjavík
577 1444.