Page 1 of 1
ABS, Spólvörn og (i) ljós

Posted:
Tue 03. Jul 2007 10:55
by ValliFudd
Í gærkvöldi þegar kveikt var á 330 komu þessi 3 ljós... Slökkt á bílnum og kveikt aftur, þá komu ABS og spólvörn.. en ekki (i).. slökkt aftur á bíl og kveikt, þá komu öll 3 aftur... bíllinn virkaði fínt.. bremsaði vel og allt..
Svo hálftíma seinna var slökkt á bílnum og kveikt 10 mín seinna.. þá var allt komið í lag... Any ideas? Þetta var svo allt í góðu í morgun líka..

Posted:
Tue 03. Jul 2007 10:57
by HAMAR
ABS skynjari held ég alveg örugglega sem er að valda þessu.

Posted:
Tue 03. Jul 2007 10:59
by bjornvil
Er þetta ekki bara ABS skynjari að crappa út á þig.
Minn hefur stundum látið svona, reyndar í keyrslu, þá kvikna ABS og spólvarnarljósið. Þau eru á í einhvern tíma, og á meðan virka ABS og spólvörn að sjálfsögðu ekki. En svo hefur þetta alltaf lagast. Yfirleitt hefur þetta gerst hjá mér þegar það er blautt úti, kannski einhver raki í einhverjum skynjaranum?
Hvað er aftur (i) ljósið?

Posted:
Tue 03. Jul 2007 11:01
by ValliFudd
bjornvil wrote:Er þetta ekki bara ABS skynjari að crappa út á þig.
Minn hefur stundum látið svona, reyndar í keyrslu, þá kvikna ABS og spólvarnarljósið. Þau eru á í einhvern tíma, og á meðan virka ABS og spólvörn að sjálfsögðu ekki. En svo hefur þetta alltaf lagast. Yfirleitt hefur þetta gerst hjá mér þegar það er blautt úti, kannski einhver raki í einhverjum skynjaranum?
Hvað er aftur (i) ljósið?
Handbremsa eða vantar bremsuvökva... right?

Posted:
Tue 03. Jul 2007 12:27
by elli
ValliFudd wrote:bjornvil wrote:Er þetta ekki bara ABS skynjari að crappa út á þig.
Minn hefur stundum látið svona, reyndar í keyrslu, þá kvikna ABS og spólvarnarljósið. Þau eru á í einhvern tíma, og á meðan virka ABS og spólvörn að sjálfsögðu ekki. En svo hefur þetta alltaf lagast. Yfirleitt hefur þetta gerst hjá mér þegar það er blautt úti, kannski einhver raki í einhverjum skynjaranum?
Hvað er aftur (i) ljósið?
Handbremsa eða vantar bremsuvökva... right?
Var það ekki bremsuvökvi kominn á tíma ... eða

Posted:
Tue 03. Jul 2007 13:18
by ValliFudd
Kom aftur núna í hádeginu.. ekki á leiðinni í hádegismat, bara á leiðinni til baka..
Hljómar eins og skynjaravesen..
Skynjararnir kosta c.a. 12 þús krónur stk...

Posted:
Tue 03. Jul 2007 20:54
by slapi
eina leiðin til að vera viss er að mæta með bílinn í umboð , fá aflestur og vera viss umm hvað er í gangi.
Segir þér meira en nokkur getur hér.

Posted:
Tue 03. Jul 2007 22:25
by Lindemann
slapi wrote:eina leiðin til að vera viss er að mæta með bílinn í umboð , fá aflestur og vera viss umm hvað er í gangi.
Segir þér meira en nokkur getur hér.
neinei..........það eru fleiri leiðir
Þetta er samt sem áður örugglega einfaldasta leiðin.

Posted:
Tue 03. Jul 2007 22:51
by JonHrafn
Mjög líklega abs skynjari, veit um eitt tilvik þar sem einhver pumpa tengd abs-inu var farin. Sömu sjúkdómseinkenni samt.
Láttu bara lesa af bílnum þá veistu nákvæmlega hvaða skynjari það er.