Smá pæling í gangi hérna
Jæja núna keypti ég á dögunum bmw 320d 2003 modelið.. það voru einhverjar gangtruflanir í honum sem voru lagaðar af ónefndu verkstæði áður en ég keypti hann, svo virtust þær hafa byrjað aftur svona viku eða tvemur vikum seinna, það sem var gert var semsagt skipt um spíssa.. ég keyrði bílinn aðeins svona og svo kom það fyrir að bíllinn hjá mér hann bara dó alltíeinu í akstri, ég leyfði honum að standa aðeins og kom honum síðan heim til frænda míns sem er aðeins fróðari í þessum viðgerðarmálum heldur en ég, við kíktum á hann og komumst að því að það voru allir spíssarnir í honum bara laflausir.. getur það ekki valdið því að það hafi skemmt eitthvað útfrá sér, þar sem að ég herti á þeim með frænda mínum og hann gekk vel eftir það.. nema þegar ég er kominn á svona 80-100 þá byrjar bíllinn að hika svakalega einsog hann sé bara að verða eldsneytislaus, en um leið og hann er kominn yfir svona 100~110 þá hættir þetta og hann og gengur smooth upp eftir það.. svo er ég líka að taka eftir því að það er ein lítil slanga sem liggur beint fyrir neðan loftsíuboxið hjá mér sem er svona 5-10cm á lengd og það virðist leka smurolía þar meðfram og beint ofaná pústið hjá mér.. Hvað mynduð þið ráðleggja mér að gera í stöðunni? Þ.e.a.s er eitthvað hægt að gera í því að láta verkstæðið laga þetta sem þeir væntanlega orsökuðu, ef ekki þá er ég samt sem áður bara búinn að panta tíma í umboðinu til að fá þetta 100% viðgert..
Mbk og von um góð svör. Hannes
Mbk og von um góð svör. Hannes