Page 1 of 1

Olíusíur

PostPosted: Sat 23. Jun 2007 09:10
by gunnar
Ég var að hugsa um að smyrja M52 mótorinn á eftir, og ég fór aðeins að pæla varðandi olíusíuna á honum. Ég ætla að setja 10W/60 olíu á hann og datt í hug hvort ég ætti að skipta um olíusíuna? (myndi gera það ef ég væri með síutöng heima) þannig ég var svona aðeins að velta þessu fyrir mér.

Ætli sé vinsælt að maður fari á smurstöð og láti bara svissa mótorolíu og komi með sína eigin ? :lol:

PostPosted: Sat 23. Jun 2007 09:48
by siggir
Það er í raun mikilvægara að skipta um síuna reglulega heldur en olíuna sjálfa (var mér sagt af smurmanni hjá toyota).

Svo þarftu enga töng á síunna. Þú rekur bara skrúfjárn í gegn um hana og snýrð með skrúfjárninu ;)

En af hverju 10w-60?

PostPosted: Sat 23. Jun 2007 09:51
by Danni
Þú þarft ekki síutöng á M52. Olíusían er í boxi sem þú skrúfar lokið af (minnir að það sé 13 toppur en hengi mig ekki uppá það)

Image

PostPosted: Sat 23. Jun 2007 11:45
by Lindemann
já endilega skipta alltaf um síuna um leið og olíuna.

PostPosted: Sat 23. Jun 2007 12:19
by Litli_Jón
afhverju 10w/60

10w/40 eða 5w/30 er alveg nó

PostPosted: Sat 23. Jun 2007 12:41
by gunnar
Mér var bent á þessa olíu af aðilunum sem settu mótorinn í fyrir mig. Bíllinn glamrar svolítið á vökvalyftum og þeir halda að þessi olía og bæti efni gæti haldið aftan af honum. Hann hefur fengið að standa greinilega einhvað mótorinn.