Þegar ég kveikti á bílnum í morgun þá var hann geðveikt stirður e-ð..
Þegar ég gaf honum inn fór hann ekkert á snúning, gekk illa og ekkert power
Hvað gæti verið að?
slapi wrote:Eina vitið er að mæta með í umboð , láta lesa af og það ætti að segja þér meira en nokkur vitleysingur hér inni getur.

Danni wrote:Er hann ennþá svona? Ég lenti í svipuðu á mínum stuttu eftir að ég fékk hann fyrst. Setti í gang og hann hökti allur og var leiðilegur, fór ekkert á snúning þegar ég gaf honum inn og endaði bara með að hann drap á sér.
Ég setti hann bara í gang aftur og allt var komið í lag. Fór svo með hann í TB og þeir tengdu hann og sögðu að þetta væri knastásskynjari.
Veit ekki hvort þú ert að lenda í þessu sama en ef hann var í góðu lagi þegar þú lagðir honum síðast og byrjaði bara allt í einu að láta svona þá finnst mér líklegast að þetta sé einhver skynjari sem er bilaður.
Jón Ragnar wrote:Glæsilegt
Fer þá á morgun og reyni að finna mér svona skynjara!
Verð að fá að blasta á bílnum eftir breytingar
Hannsi wrote:Jón Ragnar wrote:Glæsilegt
Fer þá á morgun og reyni að finna mér svona skynjara!
Verð að fá að blasta á bílnum eftir breytingar
FYI þá eru 2 knastásskynjarar sama hvað er sagt við þig og hvað sést í ETK því þegar þú tekur þetta í sundur sérðu að þeir eru tveir (sögðu í TB að það væri bara einn)
Jón Ragnar wrote:2 hvað skynjarar?
Fann bara einn á heddinu vinstrameginn... s.s bakvið loftinntakið
Skipti allavega um þetta og núna startar bíllinn sér ekki.
kemur bara svona tikktikktikk sound þegar ég reyni að starta, kemur aftan frá vélini
Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 14 guests