Mig vantar góð ráð frá mönnum sem eru vanir að vinna með lökk. Málið er að ég er með bíl sem er lakkaður og svo með glæru yfir orginal, svo tók fyrri eigandi sig til ( usa ) og að mér sýnist handmálaði tvær 3mm rendur eftir öllum bílnum beggja vegan. Mig langar/skal að ná þessu af og get kroppað þetta af án þess að skemma glæruna en er til eitthvað patent til að fjarlægja svona hluti.