Page 1 of 1
Límrendur fjarlægðar

Posted:
Thu 14. Jun 2007 08:36
by jens
Hvernig í ósköpunum tekur maður rendur af bílum.

Posted:
Thu 14. Jun 2007 08:44
by Geirinn
Hárþurrku og þolinmæði ?
Og massa svo ?

Posted:
Thu 14. Jun 2007 08:52
by flamatron
Heitt vatn..?

Posted:
Thu 14. Jun 2007 09:11
by Astijons
heey! getur prófað eitt
sakar ekki að prófa en reif baðið niður heima... og ég festi það upp með límkítti(ekki silicon) bara keppnis limkítti... og svo þurfti ég að snúa því ... því það fór svo í hurðina þegar hurðin kom í...
og það var svona kítti á hliðunum sem ég náði bara ekki af... og buið að vera á hellingi...
og þá kom mamma með einhverja Enjoy hreinsiklúta sem þarf ekki að setja hreinsiefni í...
og spurði okkur pabba hvort það væri ekki hægt að þrifa þetta af með þessu og við hlógum hátt og dátt ... heimska ljóskan...
ekki frá sögu færandi nema þá strauk hun baðið með þessum klútum og flísarnar sem kíttið var lika á... FÓR ALLT AF!
við vorum bara dude?
getur prófað að nota þetta... bara ekki byrja strax á miðju hurðina og kenna mér svo um að rispa bilinn ef það gerist svo...

Posted:
Thu 14. Jun 2007 09:25
by Erica
er einmitt í sama pakka.. notast við heitt vatn en það er sloooow process..

Posted:
Thu 14. Jun 2007 09:40
by Jón Ragnar
EKKI nota heitt vatn!!!
Vorum að taka merkingar af vörubíl um daginn og kísilinn í heita vatninu skemmdi lakkið.
Notið frekar hárþurku

Posted:
Thu 14. Jun 2007 09:40
by Geirinn
Fyrst menn eru farnir að tala um hreinsiklúta þá eru Soudal klútarnir mjög góðir.
Hreinsa allan fjandan og maður kaupir þá gjarnan þegar maður er að fara að vesenast með kítti.

Posted:
Thu 14. Jun 2007 10:25
by jens
Jæja nú hitti skíturinn viftuna. Ég held að þetta sé málað á bílinn en þessi bíll er með glæru svo ég get kroppað þetta af en nú eru bílasprautarar hér á spjallinu, hvernig á ég að ná þessu af.