Page 1 of 1

Hjálp - fastur í innkeyrslunni!!!

PostPosted: Thu 14. Jun 2007 00:21
by Gunnar Þór
Var að koma heim úr viku fríi og nú neitar Bimminn að fara áfram.

Virkar eins og hann sé fastur í bremsu, fer ekki áfram en fer afturábak.

Dettur ykkur eitthvað í hug hvað gæti verið málið?

PostPosted: Thu 14. Jun 2007 16:56
by Gunnar Þór
Kominn af stað, þurfti að taka svolítið á þessu :wink:

En hvernig getur staðið á því að allt festist í hjólunum við það að standa í viku?

PostPosted: Fri 15. Jun 2007 09:11
by Nonni
Aldrei að skilja bíl eftir í handbremsu þegar þú leggur honum í einhvern tíma.

PostPosted: Fri 15. Jun 2007 12:06
by Gunnar Þór
Geri það aldrei :wink: en hún er reyndar eitthvað fucked up, rétt tekur í þegar maður er kominn með handfangið alveg í topp.

PostPosted: Fri 15. Jun 2007 15:13
by Xavant
Nonni wrote:Aldrei að skilja bíl eftir í handbremsu þegar þú leggur honum í einhvern tíma.

Gerði það við Escortinn :lol: vinstra afturdekkið harðfestist, reyndum að dragann út götuna og til baka til að reyna losa það, það virkaði ekki þannig að það var bara gamla góða sleggjan og málið dautt, síðan var farið með drusluna uppá hauga :D :D merti mér götuna nokkuð áberandi :lol: