750 IL
Sælir spekingar. Ég var að eignast gamlan 750 il 1991 árgerð er í smá vandræðum með hann. Aðalmálið er að hann leiðir út og eftir sólahringsstöðu þá er hann rafmagnslaus. Hefur einhver lent í þessu og veit einhver hvar maður á að byrja að leyta. Eða þarf maður að fara beint með hann í T.B eða B og L ?? Og annað, flestir í kringum mig eru búnir að vera með mikinn hræðsluáróður og vilja meina að vélatölvurnar og tölvur almennt í þessum bílum séu stöðugt til vandræða og hrinji hvað eftir annað. Og eitt enn, Það er einhver tölva eða einhvert box í skottinu upp undir hilluni hægra megin sem er ótengd og vírarnir liggja bara á gólfinu. Hvaða box er þetta og ætti maður að tengja það. Og ef þið eruð að spá í hvaða bíll þetta er þá er þetta bíll sem að She Devil átti held ég og hann er með skemmt húdd eftir að viftuspaðinn fór í spað að mér skildist.