Page 1 of 1
E28 mælaborð.

Posted:
Sat 09. Jun 2007 01:51
by Danni
Á E28 518i 87 árgerð er mælaborðið með klukku í staðinn fyrir snúningshraðamæli. Ef ég tek mælaborð úr svipað gömlum bíl (veit ekki hvaða árgerð) sem er með M20 en ekki M10 (líka E28), passar það á milli eða verður dauður snúningshraðamælir?

Posted:
Sat 09. Jun 2007 09:29
by saemi
Það virkar ekki. Þú verður að hafa 4cyl snúningshraðamæli. Stundum er hægt að skipta um kubb aftan á mælaborðinu, veit ekki hvort það myndi virka eða sé hægt. Snúningshraðamælir var mjög sjaldgæft á E28 518i.

Posted:
Sat 09. Jun 2007 09:34
by Danni
Dem. En hraðamælir, bensín og hitamælar munu alveg virka samt er það ekki? Þeir eru ónýtir á núverandi mælaborði.

Posted:
Sat 09. Jun 2007 13:23
by Angelic0-
Hvaða mótor er þetta M10 ekki satt ?
Setur 6cyl mælaborðið í og svo er hvítur kubbur undir snúningsmælinum sem að þið skiptið um, ég held að hannes eigi M10 kubb...

Posted:
Sat 09. Jun 2007 17:02
by srr
Angelic0- wrote:Hvaða mótor er þetta M10 ekki satt ?
Setur 6cyl mælaborðið í og svo er hvítur kubbur undir snúningsmælinum sem að þið skiptið um, ég held að hannes eigi M10 kubb...
Ef hann Danni er að meina mælaborðið í Hvíta Hrafninum þá er það M10B18

Posted:
Sun 10. Jun 2007 22:04
by ValliFudd
Svo er lætur maður prenta þetta út á límmiða og skellir á bakvið mælana
http://www.dog8me.com/bmw/e28_budiky.pdf