Vélastilling á M30 vél og pælingar með súrefnisskynjara

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Vélastilling á M30 vél og pælingar með súrefnisskynjara

Postby Svessi » Fri 08. Jun 2007 02:40

Ég er búinn að vera að laga til 535iA 1989 bimmann minn.
Það er komið dálítið mikið ventlatif, hann er alveg að eyða í kringum 20 lítrum hjá mér innanbæjar og ég veit það fyrir víst að hann er að minnstakosti 20 hp minna en hann er skráður, jafnvel að það vanti fleiri hestöfl).
Notabene, hann er ekinn um 222.000 km.


Mig langar að láta stilla í honum vélina. Er það ekki helst að láta ventlastilla og tímastilla bíllinn? Er eitthvað meira sem hægt er að stilla eða skoða í sambandi við það? Eða eitthvað sem þér dettur í hug að láta líta á og kíkja á ástandið á einhverju, ég veit að keðjan er í góðu ástandi því ég sá hana sjálfur fyrr í vetur.
Og ég er að spá í að fara með hann í B&L, frekar en TB. Er nokkuð betra að fara eitthvað annað?

Ef hann kemur vel útúr vélastillingunni þá ætla ég að láta skipta um olíu á sjálfskiptingunni því ég hef ekki hugmynd um hvenær eða hvort það hefur nokkurtíma verið gert.
Er ekki dálítið mál að skipa sjálfur um olíuna á sjálfskiptikassanum sjálfur heima í bílskúr? Og er ekki bara venjuleg sjálfskiptolía sem færi á bílinn, eða er það bara einhver spes BMW olía sem fæst hjá B&L?

Einnig er ég að hugsa um að kaupa alveg nýja olíupönnu, kostar um 70 þús kr (komin smá sprunga í þá gömlu) og nýja pakningu á milli og láta skipta um. Það lekur dálítið mikið hjá pakkningunni.

- - -

Pústið: Það er að syngja sitt síðasta og ég hef verið að velta fyrir mér að ef bíllinn kæmi vel útúr vélastillingu og ef ég væri búinn að skipa um olíupönnu. Þá myndi mig langa að kaupa mér Remus púst. Ég er ekki að pæla í einhverju prump pústi heldur bara flottu, venjulegu, góðu Remus pústi. En þá kem ég að spurningunni, ég myndi vilja fjarlægja hvarfakútinn og það er súrefniskynjari í honum. Bíllinn er það gamall að ég þarf ekki að vera með hvarfakút en hvernig gengur maður þá frá súrefnisskynjaranum?

P.s. Ég er þegar búinn að skipa um dempara og bremsur (diska og borða) allann hringinn. Búinn að skipa um alla nema og núlla öll service ljós. Og ég er búinn að gera fleyra smotterí.
Ég er að taka hann í gegn núna og ætla að reyna laga allt í bílnum, stæðstu vandamálin eru hvernig vélin gengur og svo miðstöðin, en þetta er allt í vinnslu.
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

User avatar
Svessi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 446
Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49

Postby saemi » Fri 08. Jun 2007 08:57

Mér persónulega finnst það vera rugl að kaupa nýja olíupönnu fyrir 70þús. Myndi annaðhvort láta sjóða í þessa eða fá mér aðra notaða fyrir 10-30þús.

Ventlastilling er það eina sem myndi bæta tikkið og mögulega eyðsluna. Vélarstilling er ekki til á þessum vélum, ekkert sem hægt er að fikta í. Knastásinn gæti samt verið slitinn ásamt stöngunum sem halda rockerörmunum og þá hverfur tikkið ekki þó ventlastillt sé. En ventlastilling gæti bætt eyðsluna og tikkið verulega.

Annars er bara að skipta um hluti í innspýtingunni (AFM, hægagangsrofa, TPS osfrvs). Ef eyðslan er að aukast og þú hefur ekki skipt um O2 skynjara nýlega myndi ég veðja á hann og fá mér nýjan svoleiðis. Kaupa hann á Ebay ekki rándýran í umboðinu.

Það er ekki erfitt að skipta um á skiptingunni, en þá ættirðu að skipta líka um síu. Það er messí, tekur svolítinn tíma en ekki beint erfitt.

Ég myndi pottþétt taka þennan hvarfakút út. Remus er dýrt spaug, ég efast um að við séum að tala um minna en 150þús. Ég persónulega myndi finna mér góðan aftasta kút og svo láta smíða rest undir bílinn með 2 túpum á sitthvorri grein. O2 skynjarinn er ekkert mál, það er bara soðið á pústið gat með gengjum á réttum stað á rörið.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby IvanAnders » Sat 09. Jun 2007 21:07

Kiddi fékk um 20hö með ventlastillingu á m30b35 :wink:

En sá mótor var líka úti að skíta á ventlum :lol:
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 13 guests