Page 1 of 1

Stýrið óvenju þungt o.fl.

PostPosted: Wed 06. Jun 2007 20:01
by Frikki
Sælir, held áfram að leita að töfraráðum frá ykkur !

Eftir að sumardekkin, man reyndar ekki speccana á þeim en þau eru allavega breeið og low-profile, ef það skiptir máli. Hélt fyrst að þetta tengdist bara því að þau væru breið en þetta er byrjað að vera helvíti hættulegt :shock:

Bíllinn rykkir stundum í af öllum krafti og ég veit ekki hvað, sérstaklega þar sem göturnar eru lélegar, eins og Kringlumýrarbrautin ef maður keyrir frá Kóp við Bústaðavegsbrúnna, vitið hvað ég er að tala um!

Bíllinn er MY05 og þessi dekk fylgdu með honum, Bridgestone Laonza eða eitthvað álíka...

Er hjólastilling málið eða hvað?

PostPosted: Wed 06. Jun 2007 20:03
by IceDev
Breiðari dekk leita meira í hjólför. Þess vegna vill oft það verða aðeins erfiðara að stjórna þeim eftir t.d að vera á einhverjum mjónuvetrardekkjum

PostPosted: Wed 06. Jun 2007 20:15
by iar
Byrjaðu á að mæla þrýstinginn á dekkjunum og laga ef þarf, það kostar ekkert en getur munað öllu. Athugaðu líka mynstrið á þeim og hvort þau séu misslitin eða jafnvel of slitin.

PostPosted: Wed 06. Jun 2007 20:38
by Lindemann
svo geturu látið athuga fyrir þig slithluti, s.s. stýrisenda og spindla.

PostPosted: Thu 07. Jun 2007 01:18
by Frikki
Takk fyrir svörin, dekkin eru mjög nýleg og ekkert slitin / miseydd. Efast um að eitthvað af slithlutum séu farnir þar sem bíllinn er nýlega kominn úr þjónustu og allskonar dóti uppí umboði, skipt um bremsur, alla vökva og því um líkt.. Vetrardekkin eru næstum því jafnbreið ef ekki jafnbreið og þau dekk voru undir bílnum þegar ég fékk hann. Þannig það gæti verið að þau hafi verið sett undir hann og allt þannig uppí umboði, veit það ekki..

Er hjólastilling ekki í myndinni sem möguleg lausn?

PostPosted: Thu 07. Jun 2007 05:24
by Angelic0-
hugsanlega gæti þurft að hjólastilla bílinn, tala nú ekki um ef að "konan" hefur lagt í stæði á honum ;)

PostPosted: Thu 07. Jun 2007 07:33
by Alpina
Án vafa er þetta gerð dekkjanna,,

ef bíllinn er eðlilegur í akstri á hægum hraða.. en þegar á aðalbrautir er komið , þar sem misslitin hjólför hafa fræðilega eitthvað að segja ,tel ég að lausnin sé í augsýn

PostPosted: Fri 08. Jun 2007 02:03
by Frikki
Hmm hann leitar bara alltaf í hjólför, sama á hvaða hraða..

Kannaði nafnið á dekkjunum og þau heita Bridgestone Potenza, gleymdi samt að tjékka á tölunum..

Þetta er að gera mig gráhærðan :x

PostPosted: Fri 08. Jun 2007 11:49
by Angelic0-
Frikki wrote:Hmm hann leitar bara alltaf í hjólför, sama á hvaða hraða..

Kannaði nafnið á dekkjunum og þau heita Bridgestone Potenza, gleymdi samt að tjékka á tölunum..

Þetta er að gera mig gráhærðan :x


Eru þau breiðari að aftan en að framan.

Bridgestone Potenza eru góð dekk, alveg sama hvernig á það verður litið þá eru Bridgestone, Dunlop, GoodYear, Michelin og Pirelli mjög góðir framleiðendur dekkja og eru þetta einu framleiðendurnir sem að ég treysti til að sníða dekk undir bílinn minn.

Ég var á einhverjum "No-name" vetrardekkjum á E36 í vetur og það var bara slæmt.

Ég tel víst að bíllinn þinn hljóti að vera rangt hjólastilltur því að hann á ekki að rása svona í hjólförum, hinsvegar gæti það skýrt ýmislegt ef að þú ert á felgum með rangt offset, eða þá á breiðari að aftan en að framan...

PostPosted: Fri 08. Jun 2007 17:33
by Frikki
Hmm ég hef nú bara ekki pælt í því, gæti alveg eins verið.. Ég lét gera þetta hjá Esso útí Vesturbæ, gamla Vestdekk eða eitthvað álíka...