Page 1 of 1
Útleiðsla.

Posted:
Wed 30. May 2007 20:10
by fart
Sælir.
Sá græni tæmir sig af rafmagni á c.a. 36 tímum. Er einhver einföld leið að trouble shoota svona, eða er eitthvað algengt í E36 (nú eða BMW almennt) sem leiðir út?

Posted:
Wed 30. May 2007 20:19
by slapi
Besta leiðin ti að sjá hvort að bíll leiði út er að setja straummæli milli - á rafgeymi og mínus leiðslunar sem kemur á rafgeyminn , athugaðu það að ekki má rjúfa sambandið meðan sambandi er tekið af , þe setja pinnana á straummælinum á skóinn og á pólinn og aftengja síðan , passa að allar hurði séu lokaðar eða inniljós slökkt og þjófavörn virk ef að það á við , ef ekki þá hurðir bara læstar.
Við fyrstu aðstæður er ekkert óalgegnt að sjá 200mA-1A í notkun þetta er fyrst áður en að öll stjórnboxin sofna , þau sofna á mislöngum tíma, 5 min og upp í 40 min eftir sirka 10 min myndi ég halda í þessum bíl ættirðu að fara að sjá tölu frá 50-80 mA sem er æskileg notkun þegar bíll er í hvíld , getur verið meira eða minna en allt yfir 120-150 mA er orðið óæskilegt , ef að notkun er óeðlileg er hægt að sjá hvert notkunin er að fara fyrst með því að taka úr eitt og eitt stofnöryggi og sjá hvort að notkunin minnkar , fikrað sig neðar í rásirnar eða í öryggin sem að fara inn á notendurnar og bilanagreint síðan með því hvaða hlutir eru á því öryggi sem að notkunin fer.
Man ekki eftir einhverju vandamáli í E36 í þessum málum.
Síðan getur þetta nátturulega bara verið rafgeymirinn , láttu tjékka á því fyrst með að láta álagsmæla geyminn , kemur strax í ljós hvort hann sé´lífs eða liðinn.

Posted:
Wed 30. May 2007 20:23
by slapi
Þarf aðeins að fara að slaka á í Trópí-num , koma bara "kommur" þegar ég skrifa , og það allstaðar.

Posted:
Wed 30. May 2007 23:27
by Lindemann
ég er sammála því að byrja á því að álagsmæla rafgeyminn.

Posted:
Thu 31. May 2007 04:14
by fart
Geymirinn er glænýr.

Posted:
Thu 31. May 2007 09:14
by Einarsss
Er alveg möguleiki að e-ð í bílnum sé að dreina geyminn þó hann sé splunkunýr


Posted:
Thu 31. May 2007 09:18
by fart
Það er klárt mál að eitthvað er að tæma geyminn..
Ég fer með hann á rafmangsverkstæði, held að það sé betra fyrir dúfus eins og mig.


Posted:
Thu 31. May 2007 11:25
by Stanky
Er nákvæmlega svona í gangi á mínum bíl.
Það sem ég gerði var að ég mældi viðnámið ofan í öll öryggin og athugaði hvort ég myndi sjá einhverjar dúbíus tölur.
Svo bara finna út á hvaða leiðslu öryggið er sem dúbíus talan kom, og byrja að troubleshoota
Þetta er dálítið eins og að leita eftir nál í heystakki.
kv,
haukur

Posted:
Thu 31. May 2007 11:58
by gstuning
Góð leið er að vera að straum mæla og taka hvert og eitt öryggi úr,
þegar straumurinn dettur niður þá veistu á hvaða rás á að leita,

Posted:
Thu 31. May 2007 12:19
by fart
þetta er helvítis vinna ef maður þarf alltaf að fara afturí skott til að kíkja á mælirinn, eða er hægt að nota +(plús) tenigð í húddinu til að setja voltmælirinn á?

Posted:
Thu 31. May 2007 12:21
by Angelic0-
fart wrote:þetta er helvítis vinna ef maður þarf alltaf að fara afturí skott til að kíkja á mælirinn, eða er hægt að nota +(plús) tenigð í húddinu til að setja voltmælirinn á?
Nei, verður að mæla neyslu frá rafgeymi...
Farðu bara með hann á verkstæði, þeir hafa ekki verið að rukka einhver morðfjár hérna heima... allavega ekki hjá RÓ...

Posted:
Thu 31. May 2007 20:07
by Lindemann
fart wrote:þetta er helvítis vinna ef maður þarf alltaf að fara afturí skott til að kíkja á mælirinn, eða er hægt að nota +(plús) tenigð í húddinu til að setja voltmælirinn á?
straummæling(amper) fer öðruvísi fram en spennumæling.
Þegar þú mælir straum þarftu að setja mælinn inní rásina, þ.e. rífur rásina og setur mælinn á milli.

Posted:
Sun 10. Jun 2007 09:26
by fart
Fór með hann á verkstæði.
Þar kom í ljós að relahy fyrir magnara (oem bmw soundsystem) var eitthvað dúbíus og var að tæma rafgeyminn.

Posted:
Sun 10. Jun 2007 09:38
by Eggert
Flott að það var allavega eitthvað eins auðvelt eins og að skipta um relay. Voru þeir lengi að finna útúr þessu?
M5Board

Posted:
Sun 10. Jun 2007 10:18
by JonFreyr
Mig minnir endilega að ég hafi lesið um svona vandamál í M5....eða í einhverjum Bimma í það minnsta

en það er rétt með mælinguna, amper eru mæld í seríu en volt í parallel.....minnir mig
