Page 1 of 1

Fóðringar E39

PostPosted: Tue 29. May 2007 22:11
by bjornvil
Jæja, þá er kominn tími á að skipta um fóðringar í framfjöðruninni á 523.

18" felgur og M Sport fjöðrun + slæmir malarvegir = ekki gott :evil:

Fór sem sagt í smá bíltúr með fjölskylduna frá Höfnum á Reykjanesi að Krísuvík. Ekki góðir vegir þar. Malarvegir, slæmir, eins og að keyra á þvottabretti mest allan tímann. Tek það fram að ég keyrði MJÖG hægt, og reyndi eins og ég gat að fara varlega :)

Eftir þessa svaðilför heyrist mikið bank og brestir í fjöðruninni, var aðeins byrjað að heyrast en nú er allt farið held ég. Einnig er hann bara leiðinlegur í keyrslu, enda líka sprakk annar framdemparinn við þessi læti líka.

Bara leiðindamál, en hann ætti líka að vera eins og nýr í akstri eftir að það verður búið að skipta um það sem þarf að skipta um.

Mínar spurningar eru sem sagt: Hvaða fóðringar ætti ég að kaupa? Allar? Bara einhverjar sérstakar? Hvað heitir það sem ég þarf að kaupa þá og hvert er best að snúa sér í þessum málum, og hvað má ég búast við að eyða miklum pening í þetta?

PostPosted: Tue 29. May 2007 22:27
by Tommi Camaro
allt draslið nytt í framfjöðrun er svona 150 kall fyrir utan dempara

PostPosted: Tue 29. May 2007 22:36
by bjornvil
Tommi Camaro wrote:allt draslið nytt í framfjöðrun er svona 150 kall fyrir utan dempara

Úff, semsagt þeir slithlutir sem þarf að skipta um?

PostPosted: Tue 29. May 2007 23:39
by íbbi_
já, þú kaupir bara framspyurnuna rog arma með fóðringunum í, líklegast eru þetta ballancestangar endar og fremri og aftari spyrna hvoru megin, og jafnvel millibilstöng

PostPosted: Tue 29. May 2007 23:47
by bjornvil
Ok, en ef ég vill reyna að sleppa aðeins betur frá þessu en 150þús. Og kaupa bara fóðringarnar. Er það ekki hægt?

PostPosted: Wed 30. May 2007 00:13
by íbbi_
að mínu mati ekki þess virði.. ef það er hægt að fá bara fóðringar

PostPosted: Wed 30. May 2007 10:41
by bjornvil
Ok. En hvað heita þessir hlutir sem ég þyrfti þá að kaupa, á íslensku og ensku ef hægt er takk :)

PostPosted: Wed 30. May 2007 13:02
by Angelic0-
Það er hægt að fá bara fóðringarnar, en það borgar sig aldrei því að þú þarft að láta pressa það í á verkstæði og verkstæðin eru að rukka peninga fyrir það.

Þú þarft að kaupa þá neðri og efri spyrnur með fóðringum.

Skoðaðu stýrisendana, ég stórefa samt að þeir hafi slitnað en alltaf borgar sig að hafa varann á !

ætlaru að fara eitthvað í afturfjöðrunina ? Fóðringarnar þar eru mökkdýrar og vinnan við þær dýrari.

Ég myndi byrja bara á framfjöðruninni...

Fremri spyrnurnar í 523 kosta 7900kr
Aftari spyrnurnar í 523 kosta 14900kr
Stýrisendarnir í 523 kosta 5900kr

Þetta eru TB verð.. ég held að dempararnir hafi kostað einhvern 22þ man ekki hvort að það voru báðir eða annar... en ég á splunkunýja dempara í 523 handa þér. Það er búið að keyra á þeim 3-4þ km.

PostPosted: Wed 30. May 2007 14:48
by bjornvil
Takk fyrir þetta Viktor.

Ég hugsa ég fari með bílinn og láti kíkja á hvað það er í rauninni sem þarf að skipta um. Þarf ekki vera að allt sé farið.

Varðand demparana þá er minn með M sport fjöðrun þannig að það eru ekki sömu demparar og standard. Ég fann einhverja dempara hjá Schmiedmann sem eiga að vera OEM quality sem ég hugsa að ég kaupi, nema einhver eigi M sportfahrwerk dempara handa mér :)

PostPosted: Wed 30. May 2007 15:21
by íbbi_
athugaðu með millibilstöng, það eru fóðringar á henni sem gefa sig alltaf, heyrist í því og gefur leiðindafeel í stýrið, athugaðu líka með ballancestangarenda, þeir gera klúnkklúnk þegar þeir slappast

PostPosted: Wed 30. May 2007 15:42
by Angelic0-
bjornvil wrote:Takk fyrir þetta Viktor.

Ég hugsa ég fari með bílinn og láti kíkja á hvað það er í rauninni sem þarf að skipta um. Þarf ekki vera að allt sé farið.

Varðand demparana þá er minn með M sport fjöðrun þannig að það eru ekki sömu demparar og standard. Ég fann einhverja dempara hjá Schmiedmann sem eiga að vera OEM quality sem ég hugsa að ég kaupi, nema einhver eigi M sportfahrwerk dempara handa mér :)

Ég keypti einmitt M sport demparana :)

Sérð það greinilega á þeim því að þeir eru mikið verklegri en venjulegu dempararnir :)

Hannes var með mér þegar að ég keypti demparana og við tókum einmitt eftir því að þeir eru örlítið styttri en orginalinn...

En OEM vökvademparar eru rusl... þú vilt fara í GAS... þessir sem að ég er með eru SACHS...

PostPosted: Wed 30. May 2007 15:43
by bjornvil
íbbi_ wrote:athugaðu með millibilstöng, það eru fóðringar á henni sem gefa sig alltaf, heyrist í því og gefur leiðindafeel í stýrið, athugaðu líka með ballancestangarenda, þeir gera klúnkklúnk þegar þeir slappast

Einmitt, ég spjallaði við mann hjá B&L og hann sagði mér að balancestangaendarnir væru mjög háværir þegar þeir færu.

Takk fyrir svörin strákar.

Annað. Er eitthvað vit í því að reyna að taka þetta að utan, t.d. frá Schmiedmann, þetta eru nú ekkert svo hræðileg verð sem Viktor telur upp frá TB.

Einnig, er ekki alveg möguleiki að skipta um þetta sjálfur? Það þarf engin sérstök verkfæri við þetta?

PostPosted: Wed 30. May 2007 15:45
by Angelic0-
bjornvil wrote:

Það þarf engin sérstök verkfæri og þetta er mjög auðvelt að skipta um...

Spyrnurnar eru easy... bara 2 rær... af og á... í báðum spyrnutilfellum..

PostPosted: Wed 30. May 2007 15:52
by bjornvil
Angelic0- wrote:

Ok, en þarf að hjólastilla eftir að hafa skipt um svona?

PostPosted: Wed 30. May 2007 16:11
by Angelic0-
Þarft þess ekki eftir spyrnuskipti, en það er mælt með því eftir stýrisendaskipti...