Page 1 of 2

Bremsa eða Gíra niður?

PostPosted: Sun 20. May 2007 03:43
by KristjánBMW
Bróðir minn er alltaf að segja mer að gira niður i stað þess að bremsa.

er bremsan ekki til þess að hægja a ser og stopa?

hver er munurinn? semsagt pros og cons við bæði.

PostPosted: Sun 20. May 2007 05:08
by _Halli_
Pros við að gíra niður: Bensínsparnaður og bremsusparnaður :lol:

PostPosted: Sun 20. May 2007 06:11
by Kristjan PGT
_Halli_ wrote:Pros við að gíra niður: Bensínsparnaður og bremsusparnaður :lol:


Þú veist að þú átt að sleppa bensíngjöfinni þegar þú bremsar? ;)

PostPosted: Sun 20. May 2007 06:15
by Arnarf
Kristjan PGT wrote:
_Halli_ wrote:Pros við að gíra niður: Bensínsparnaður og bremsusparnaður :lol:


Þú veist að þú átt að sleppa bensíngjöfinni þegar þú bremsar? ;)


Þegar þú gírar þig niður notar vélin ekki bensínið til að snúast heldur snúningana frá dekkjunum.

Þannig ef þú ert að gíra þig niður, eða ert að fara niður í brekku í gír og stendur ekki á bensíninu ertu að eyða 0 L/100

þú fattar

PostPosted: Sun 20. May 2007 09:45
by JonHrafn
Einu sinni var ég í Noregi með systur minni og við vorum að keyra niður af Trysil fjallinu. Þegar niður var komið og við þurftum að setja 100kall í svona veghlið þá rauk svoleiðis úr öllum bremsum að ég hélt að það væri að kvikna í bílnum. Snéri mér að systu og spurði steinhissa, stóðstu á bremsunni í 30mín??? já er það ekki allt í lagi :þ

Svoldið extreme dæmi en þetta er ástæðan fyrir því að maður gírar niður.

PostPosted: Sun 20. May 2007 11:08
by Lindemann
best að gera bara bæði.....

PostPosted: Sun 20. May 2007 11:11
by ValliFudd
Sama með Hellisheiði eystri.. Þú keyrir ekki þar niður á bremsunni :) Ég gíra alltaf niður, nota bremsuna eins lítið og ég get..

Sumir nenna að standa í því að skipta um bremsuborða á 10k fresti.. Ég hef ekki þurft að skipta um bremsuborða í fjöldamörg ár.. Man að þegar ég átti Golfinn, sem var keyptur nýr.. Átti hann í 2 ár, keyrði 80.000 km.. og þeir í Heklu sögðu að það færi að koma tími á borðana svona "á næstunni" :lol:

Svo var félagi minn á Charade.. þeir voru að klárast á svona 1000 km fresti.. En hugsanlega var það eitthvað annað.. ónýtir diskar eða eitthvað.. Allavega vona ég það :lol:

PostPosted: Wed 23. May 2007 12:56
by Frikki
JonHrafn wrote:Einu sinni var ég í Noregi með systur minni og við vorum að keyra niður af Trysil fjallinu. Þegar niður var komið og við þurftum að setja 100kall í svona veghlið þá rauk svoleiðis úr öllum bremsum að ég hélt að það væri að kvikna í bílnum. Snéri mér að systu og spurði steinhissa, stóðstu á bremsunni í 30mín??? já er það ekki allt í lagi :þ

Svoldið extreme dæmi en þetta er ástæðan fyrir því að maður gírar niður.


:shock: :rollinglaugh:

Annars þótt ég sé á steptronic bimmer þá gíra ég hann samt alltaf niður, líður bara illa ef ég stend bara á bremsunni, hann er líka sneggri að hægja á sér finnst mér allavega.. svona ef maður hefur verið að ýta bensíngjöfinni á skynjarann :D

PostPosted: Wed 23. May 2007 13:23
by Aron Fridrik
cons væri að kúplingin er fljótari að fara ef þú ert alltaf að gíra hann upp í háan snúning..

PostPosted: Wed 23. May 2007 13:24
by BMWaff
Bíddu var það ekki í Top Gear þáttinum þegar hann var að reyna að komast frá A - B á einu tanki... Þá var hann að tala um þetta...

Afhverju minnir mig að hann hefði sagt að betra væri að bremsa en ekki gíra niður?... Þarf nú að fara að finna þáttin...

PostPosted: Wed 23. May 2007 13:27
by Aron Fridrik
BMWaff wrote:Bíddu var það ekki í Top Gear þáttinum þegar hann var að reyna að komast frá A - B á einu tanki... Þá var hann að tala um þetta...

Afhverju minnir mig að hann hefði sagt að betra væri að bremsa en ekki gíra niður?... Þarf nú að fara að finna þáttin...


hann sagði að það væri betra að gíra niður í þeim þætti ;)

PostPosted: Wed 23. May 2007 13:45
by gstuning
Revmatcha > hitt, þá sparast kúpling og klossar

PostPosted: Wed 23. May 2007 18:08
by KristjánBMW
gstuning wrote:Revmatcha > hitt, þá sparast kúpling og klossar


ja alveg rett revmatcha það er malið. geri það alltaf

hvað er að revmatcha :))))

PostPosted: Wed 23. May 2007 19:11
by Alpina
:shock: :shock:

PostPosted: Wed 23. May 2007 19:12
by Lindemann
það er þegar þú ert að gíra niður og gefur í uppá réttan snúning áður en þú setur í lægri gírinn.