föst hurð í e-36

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

föst hurð í e-36

Postby Elnino » Fri 18. May 2007 12:19

Jæja þá allt í einu tók farþega hurðinn uppá því hjá mér að opnast ekki.

Ég get sett "pinnann" upp og niður en hún er alltaf læst.

Hvað gæti orsakað þetta?


kveðja Elli
BMW 330 metch 2002
Bmw e-36 323 coupe - 1997 - SELDUR
User avatar
Elnino
Getawaybílstjóri
 
Posts: 798
Joined: Fri 15. Apr 2005 14:18
Location: Þorlákshöfn City!

Postby _Halli_ » Fri 18. May 2007 15:38

Ég lenti í þessu með bílstjórahurðina hjá mér um daginn. Það var eitthvað slit í læsingunni sem varð til þess að lásinn fór ekki af þótt að maður tæki úr lás.

Ég byrjaði á því að reyna mikið magn af WD-40 en það gerði ekki mikið meira en að skilja eftir mikinn keim í bílnum.

Svo tók ég hurðarspjaldið af, og tróð mér inní hurðina, og komst að því að það er lítið gat undir læsingunni sem ég tróð einhverjum andskotanum inní, minnir að það hafi verið skrúfjárn. Og eftir smá tíma af poti og pirring, þá ýtti ég á eitthvað járn innan í læsingunni sem opnaði dyrnar. VOILA


Tók reyndar læsinguna úr hinni hurðinni til að sjá þetta betur, mæli með að þú gerir það ef þú ert farinn að eyða óeðlilega miklum tíma í að leita að þessu gati.


Og áður en þú ferð að gera þetta allt, tékkaðu hvort járnið sem tengir pinnann við læsinguna brotnaði nokkuð eða datt úr sambandi :wink:
Neðanjarðarlestir, sporvagnar og strætisvagnar
BMW E36 '91 318i - Bifreið - R.I.P
Dethleffs Rondo RF3 '98 - Hjólhýsi - Í vetrardvala
CombiCamp 2000 '78 - Tjaldvagn - SELDUR
User avatar
_Halli_
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 424
Joined: Tue 31. May 2005 19:39
Location: Oslo


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests