Þannig eru mál með vexti að þegar ég læt miðstöðina á þá kemur þetta geðveikt skemmtilega hljóð eins og eitthvað sé laust inn í miðstöðinni. Eða ekkert svo ólíkt hljóðinu þegar menn voru að setja spil á reiðhjólin sín í gamladaga.
Ég er að pæla hvort þetta sé mótorinn sjálfur eða bara eitthvað laust drasl
Miðstöðin blæs bæði heitu og köldu..
Nei ég er ekki buinn að opna og ég hef ekki haft tíma enþá.
Ætla að gera það í vikunni en langaði bara að vita hvort einhver annar hefði lent í þessu eða "veit" hvað þetta er


