Page 1 of 1

Skrýtið hljóð í E30

PostPosted: Mon 30. Apr 2007 14:54
by arnibjorn
Jæja ég veit ekki alveg hvað er í gangi...

En ég fór með bílinn á dekkjaverkstæði fyrr í dag og þegar hann fór inn var bíllinn alveg í góðu lagi(fyrir utan að dekkin voru ónýt) en svo þegar búið var að skipta um dekk og ég keyri í burtu þá heyrist svona skrítið "dúnk" hljóð í hvert skipti sem vinstra afturhjólið snérist.

Ég snéri náttla við og hélt að þetta væri eitthvað klúður hjá þeim en þeir sögðu að þetta hljóð kæmi ekki frá neinu sem þeir hefðu gert þannig að þeir vildu ekkert gera.

Já og þetta er E30 318i drusla.

Dettur ykkur eitthvað í hug hvað þetta gæti verið? :?

Er nokkuð einhver sem væri til í að kíkja á þetta hjá mér?? Skúra-Bræður geta því miður ekkert hjálpað mér!

-Árni Björn

PostPosted: Mon 30. Apr 2007 15:05
by Steinieini
Það eru væntanlega skálar að aftan hjá þér ?

Prófaðu að opna skálina að aftan og skoða þar inn.

Ég lenti í svipuðu um daginn og þegar ég tók diskinn af, þá kom bara gormasettið á móti mér.

PostPosted: Mon 30. Apr 2007 15:09
by arnibjorn
Ég held að ég sé búinn að komast að því að þetta sé öxullinn. Það þarf að skipta um hann. :?

Á einhver öxul?? :P

PostPosted: Mon 30. Apr 2007 15:52
by Birkir
ég ætti að eiga hann til.

Getur náð í mig í síma 663-4560 eða bara pm.


Kv,

PostPosted: Mon 30. Apr 2007 23:57
by Geirinn
Viss um að þetta sé ekki handbremsan ?

Hef heyrt svoleiðis dunk dunk og það var handbremsan í því tilviki.

Það hvarflaði engan vegin að okkur fyrr en við hömuðumst á henni.

Þá er ég að miða við að hljóðið komi aftanfrá ? :lol:

PostPosted: Tue 01. May 2007 00:10
by siggir
Mig grunar nú helst að þeir hafi bara hert illa. Eða að felgan hafi skekkst. Hvað voru þeir að gera?

PostPosted: Tue 01. May 2007 00:31
by jon mar
gæti verið handbremsan, nýbúinn að græja þetta uppá nýtt í einum bmw félaga minna :)