bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
ég var stoppaður með xenon 10000 k https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=21449 |
Page 1 of 2 |
Author: | skaripuki [ Thu 12. Apr 2007 22:41 ] |
Post subject: | ég var stoppaður með xenon 10000 k |
er það ekki öruggt að 10000k xenon kitt sé löglegt á íslandi?? var að keyra í sakleysi mínu upp breiðholtsbrautina þegar löggan keyrir fram úr mér og horfir illilega á mig og bílinn... hún keyrir svo áfram og bíður eftir mér hjá shell í breiðholti.. þar stoppar hún mig og hélt ég að hún væri að stoppa mig vegna þess að ég er með skyggðar framrúður en það eina sem hún sagði var að ég væri með ólögleg framljós (að þau væru of blá) ég sagði honum að þetta væru xenon kitt 10000k sem væru lögleg en hann var ekki viss um það og sagði að hann gæti látið boðun í skoðun á mig en sleppti mér í þetta sinn og sagði að ég ætti að láta skoða þetta hjá mér.... ég spyr bara eru ljósin hjá mér lögleg eða ekki.....? |
Author: | IceDev [ Thu 12. Apr 2007 22:43 ] |
Post subject: | |
Tjah, já og nei Það þarf víst gjarnan að vera sjálfvirkur stillibúnaður á Xenon ljósum. Hefðir líklegast sloppið hefðiru sagt að þetta væru "Xenon ljós" en ekki "Xenon kitt" En þetta eru bara mínar getgátur |
Author: | Aron Fridrik [ Thu 12. Apr 2007 22:43 ] |
Post subject: | |
ef þau eru með dot merkt eða eitthvað álíka.. |
Author: | Þórir [ Thu 12. Apr 2007 22:45 ] |
Post subject: | |
Sæll. Ég held að skv. einhverjum evrópustaðli þurfi Xenon að vera með þessum sjálfstillibúnaði auk þess að vera með þvottakerfi. En, til að vera leiðinlegur, hvernig reiknast þér til að löggan sem stoppaði þig sé fífl? Maðurinn stoppar þig, talar við þig og sleppir þér síðan og lætur þig njóta vafans. Hvor er fíflið? Kv. Þórir |
Author: | arnibjorn [ Thu 12. Apr 2007 22:47 ] |
Post subject: | |
Ég er sammála Þóri.. af hverju að kalla lögguna fífl ef hún sektaði þig ekki og sleppti þér síðan?? ![]() |
Author: | skaripuki [ Thu 12. Apr 2007 22:48 ] |
Post subject: | |
já kannski full hart að kalla hann fífl ég var bara nokkuð pirraður vegna þess að ég er búinn að eyða helling að pening í þetta og ef þetta er svo ólöglegt þá er það svoldið mikið tap en ég breyti þessu fífl dæmi bara ![]() |
Author: | arnibjorn [ Thu 12. Apr 2007 22:49 ] |
Post subject: | |
skaripuki wrote: já kannski full hart að kalla hann fífl ég var bara nokkuð pirraður vegna þess að ég er búinn að eyða helling að pening í þetta og ef þetta er svo ólöglegt þá er það svoldið mikið tap en ég breyti þessu fífl dæmi bara
![]() Trúi því að þú sért pirraður ![]() Ég hef allavega aldrei heyrt áður að það sé ólöglegt að vera með Xenon ![]() Ég lenti allavega ekki í neinu veseni þegar ég var með 8000k ljós í E36 bílnum sem ég átti og þau voru nokkuð blá! |
Author: | freysi [ Thu 12. Apr 2007 22:56 ] |
Post subject: | |
En ef ljósin eru CE merkt? Nokkuð margir ólöglegir ef að þetta er bannað eftir allt saman ![]() |
Author: | X-ray [ Thu 12. Apr 2007 23:05 ] |
Post subject: | |
http://www.autoexpress.co.uk/videos/fea ... _test.html áhugavert video. |
Author: | bjahja [ Thu 12. Apr 2007 23:08 ] |
Post subject: | |
X-ray wrote: http://www.autoexpress.co.uk/videos/featuresvideos/204742/xenon_test.html
áhugavert video. Mjög áhugaverður punktur!!! |
Author: | skaripuki [ Thu 12. Apr 2007 23:10 ] |
Post subject: | |
hver er þá niðurstaðan í þessu öllu saman.....? er þett löglegt eða hvað? |
Author: | X-ray [ Thu 12. Apr 2007 23:28 ] |
Post subject: | |
Ég hringdi og spurði fyrir sjálfan mig fyrir nokkru og fékk nokkra góða punkta frá Frumherja. Xenon oder bi xenon; Xenon aðalljós þurfa að vera í sjálfstillandi kerum ce, dot merkt. 75W max Hái geislinn þarf ekki að vera í þar telgerðum kerum + þvottur. Max 75W Þokuljós/kastarar; Xenon leyfilegt þurfa ekki að vera í þar til gerðum kerum. Max 75W Niðurstaða, get fengið mér Xenon á 20-30 kall og átt í hættu að vera boðaður í skoðun og sektir osf. ![]() Kaupa orginal xenon ker í e32 og ballastir... 400 kall nýtt eða notað á ebay úr 750-E34M5 300þús-ish komið heim ![]() Eða bara sleppa því ![]() |
Author: | íbbi_ [ Thu 12. Apr 2007 23:58 ] |
Post subject: | |
já það er alveg klárt mál að bílar með xenon verða að vera með sjálfstillandi ljós og þvottabúnað, tók fyrst eftir þessu og fór að forvitnast þegar ég sá þetta á nýjum bílum þegar ég vann í bílaumboði það eru nú líka alveg ein leðin í þessu að "róa sig" aðeins og setja ekki sona ofsalega blá ljós í bílana.. löggan veitir bílum með 6k enga athygli.. skyl vel að þeir séu að eltast við bíla með 10k, ég var að keyra út á land um daginn og mætti nokkrum bílum með sona ofsakitt einhver og ég þurfti nánast að stoippa bílin meðan þeir fóru framhjá því vegurinn ásamt öllu öðru sem ég sá hvarf |
Author: | Siggi H [ Fri 13. Apr 2007 00:07 ] |
Post subject: | |
eftir sem ég best veit þá er allt uppað 8000K löglegt, eftir það eru þau farinn að verða of lituð.. og allir vita það að neon kitt t.d. er ólöglegt því þetta telst sem ólöglegur ljósabúnaður.. líka þótt þú sért með bláar stöðuljósaperur. þetta var svona nokkurnveginn útskýringarnar sem ég fékk hjá skoðunarmanninum hérna. |
Author: | Benzer [ Fri 13. Apr 2007 00:36 ] |
Post subject: | |
Fór með minn bíl i skoðun um daginn og er er með xeonon 8000 og það var allt i lagi..hann setti ekkert útá það... |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |