Page 1 of 1

Íslandskort í BMW

PostPosted: Fri 30. Mar 2007 00:24
by Jón Bjarni
Sælir

Ég er að öllum líkindum að fara að fjárfesta í einum bimma. Nánar tiltekið 530 d 2002 eða 2003.

Við þessar pælingar um bílinn vaknaði sú spurning hjá mér hvort að hægt væri að setja íslandskort í bílinn ef hann verður með Navi búnaði?

Ég veit að það er til svona götukort hjá R. Sigmundsson en veit ekki hvort að það sé hægt að setja það í bílinn.

Ég prufaði að leita hér á spjallinu hvort eitthver hafi gert þetta en fann ekkert nema efasemdir og sá þráður var frá síðasta sumri.

Til að taka saman allt þetta bull í mér þá er spurningin einföld: Hefur eitthver sett svona görukort í bílinn hjá sér?

KV
Jón Bjarni

PostPosted: Fri 30. Mar 2007 08:02
by Einarsss
Mjög ólíklegt að það virki, nema það sé garmin software í gpsinu hjá þér.


Er btw að vinna hjá R.Sigmundssyni og sé um garmin gps og íslandskortin þar ;)

PostPosted: Fri 30. Mar 2007 09:09
by Jón Bjarni
Er semsagt eitthver önnur týpa af hugbúnaði í bílunum?

PostPosted: Fri 30. Mar 2007 09:30
by Einarsss
já þetta er alls ekki algengt sem orginal frá bílaframleiðendum þetta kerfi. Ég var búinn að tjekka á þessu fyrir svona 1-2 mánuðum hjá garmin úti og þeir töluðu um að þeir væru ekki að framleiða eins og er í built in orginal fyrir bílaframleiðandur.

En þú gætir mögulega fengið þér græju eins og þessa ef þú ert með kenwood touch screen

http://www.caraudiodiscount.com/acatalog/kenwood_garmin_navigation.html

eða

http://www.garmin.com/products/gvn52/ ef þú ert ekki með touch screen frá kenwood en þá notaru fjarstýringu til að stjórna gpsinu. Það er must að hafa einhvern skjá sem tekur video in. Þessi möguleiki kostar 54.900 m/vsk án evrópu korts en 61.900 m/vsk með evrópukorti

PostPosted: Fri 30. Mar 2007 10:32
by ValliFudd

PostPosted: Sun 22. Apr 2007 11:52
by MRA530d
Sæll og til hamingju með að velja einn besta bíl sem BMW hefur smíðað. Fékk mér sjálfur 530d 2002 módel í fyrra og er enn með brosið frosið. Þetta er bara snilldarvagn út í eitt.

Ég er líka með sjónvarp og NAVI en þær skýringar sem ég hef fengið eru þær að BMW gerir samning við mismunandi framleiðendur svona tækja með reglulegu millibili. Þeir sem framleiddu fyrir BMW 2002 eru ekki endilega þeir sömu og framleiddu svo TV/NAVI fyrir BMW 2003. Þetta er stærsta klúðrið fyrir kaupendur bílanna. Mér skilst að þeir sem framleiði tækin sjái um að gera kortadatabase-ana fyrir sín tæki. Skiljanlega þá eru þeir ekki allir til í að vinna gögn fyrir Ísland, allt of lítill markaður til að sú vinna borgi sig. Það sem mér finnst reyndar hlægilegast af öllu í þessu eru að þessir gúrúar vilja ekki einu sinni kaupa og selja gögn sín á milli!!! Þeir vilja frekar vinna allt frá grunni í hvert skipti sem mér finnst alveg ótrúlega bjánalegt.

En, svona er þetta og við sem kaupendur bílanna (á Íslandi) þurfum að bíta úr nálinni með þetta og eyða peningum í að nýta þetta með alls kyns monkey business. Gangi þér vel annars og ef þú gerir eitthvað í þessu þá vildi ég gjarnan heyra hvernig þú leysir þetta hjá þér. Sjálfur hef ég ekki getað ákveðið hvað ég geri í þessu.

PostPosted: Sun 22. Apr 2007 14:43
by Angelic0-
Það er hægt að setja t.d. leigubílanavi í PC og converta í software fyrir þinn bíl...

Navision, Garmin og Cmap.... og eflaust fleiri !

PostPosted: Sun 22. Apr 2007 14:51
by MRA530d
Jahá! Ok. Þetta eru nýjar fréttir fyrir mér. Flott. Þá ætti maður kannski að drífa í að klára dæmið...

PostPosted: Sun 22. Apr 2007 14:59
by Eggert
En hvernig er það... munar miklu í verði á að taka inn 2003 E39 dísel eða 2004 E60?

Hef ekki kynnt mér það... en einhvernveginn finnst mér E60 ákjósanlegri bíll.

PostPosted: Sun 22. Apr 2007 15:12
by Djofullinn
Eggert wrote:En hvernig er það... munar miklu í verði á að taka inn 2003 E39 dísel eða 2004 E60?

Hef ekki kynnt mér það... en einhvernveginn finnst mér E60 ákjósanlegri bíll.
Það munar helling, allavega 10k evrum

PostPosted: Sun 22. Apr 2007 15:14
by Eggert
Djofullinn wrote:
Eggert wrote:En hvernig er það... munar miklu í verði á að taka inn 2003 E39 dísel eða 2004 E60?

Hef ekki kynnt mér það... en einhvernveginn finnst mér E60 ákjósanlegri bíll.
Það munar helling, allavega 10k evrum


ok :oops:

Sá að það er hægt að fá 530d E60 niðrí svona 25k euro...

PostPosted: Sun 22. Apr 2007 17:39
by Alpina
Eggert wrote:
Djofullinn wrote:
Eggert wrote:En hvernig er það... munar miklu í verði á að taka inn 2003 E39 dísel eða 2004 E60?

Hef ekki kynnt mér það... en einhvernveginn finnst mér E60 ákjósanlegri bíll.
Það munar helling, allavega 10k evrum


ok :oops:

Sá að það er hægt að fá 530d E60 niðrí svona 25k euro...


:shock: :shock:

PostPosted: Sun 22. Apr 2007 17:53
by bimmer
Er búinn að kynna mér þetta svolítið. Loftmyndir eiga kortin til og
gætu konvertað þeim yfir á það form sem framleiðandi kortanna
fyrir leiðsögukerfin þarf. Þessi vinna tæki ekki langan tíma.

Vandinn er hins vegar sá að framleiðandinn lítur ekki á Ísland sem
forgangsverkefni og er að dúndra allskonar löndum framfyrir Ísland
í röðinni. Þannig að það getur orðið smá bið á þessu.

PostPosted: Sun 22. Apr 2007 22:45
by trompet
Angelic0- wrote:Það er hægt að setja t.d. leigubílanavi í PC og converta í software fyrir þinn bíl...

Navision, Garmin og Cmap.... og eflaust fleiri !


ertu búinn að prófa það sjálfur, eða veistu hvaða sw hefur verið notað til að gera það?