Page 1 of 1
felgurnar minar

Posted:
Sun 18. Mar 2007 15:05
by Astijons
var að spá í... ef ég myndi fara með felgurnar minar í
http://www.polyhudun.is/
gætu þeir gert felgurnar einsog þær voru orginal?
og ef ég fer með þær þangað gera þeir ekki allt?? nema ég læt taka dekkinn af og setja þau aftur og á blancera?
hafi þið farið með felgurnar ykkar þangað?

Posted:
Sun 18. Mar 2007 15:06
by Astijons
helvitis ruslmyndavéla símar...

Posted:
Sun 18. Mar 2007 15:08
by Aron Fridrik
eru þær með póleraðan kannt ?
og þú yrðir efalaust að glerablása þær fyrir

Posted:
Sun 18. Mar 2007 15:10
by Astijons
Þeir eru með eitthvað á heimasíðunni...
"Núna getum boðið uppá sandblástur og húðun í einum pakka og tekur það ferli um 2-3 daga. þið komið með felgurnar dekkjalausar og við klárum rest.
Fyrir þetta tökum við aðeins 31.722 fyrir ganginn af fólksbílafelgur"
er munur á sandblástri og gler?
hvað er póleraður kanntur?
kantur er einsog felgurnar bara??

Posted:
Sun 18. Mar 2007 15:20
by Aron Fridrik
póleraður kantur þá er kanturinn krómaður..
sandblásning og glerblasning eru alveg eins nema það er notað sand í annað.. er bara ekki viss hvort það sé hægt að sandblása ál.. held að það sé bara hægt að glerblása það..
ekki alveg viss samt..

Posted:
Sun 18. Mar 2007 15:31
by íbbi_
pólerun er ekki króm.. pólerun þá er álið pússað og unnið niður þangað til það glansar eins og málmur "augljóslega" en króm er húð sem sem sprautað á álið

Posted:
Sun 18. Mar 2007 15:44
by Aron Fridrik
það bara lúkkar eins og króm.. hann vissi ekki hvað það væri þannig ég tók bara dæmi sem hann gæti séð fyrir sér


Posted:
Sun 18. Mar 2007 16:15
by íbbi_
ertu að gefa í skyn að hann sé heimskur


Posted:
Sun 18. Mar 2007 16:17
by Astijons
en ég man nuna hvað pólerun er ...
var gert við bíl og hann var tjakkaður upp og látinn ganga...
maður getur ekki munað allt... það er á tæru...
svo ég er ekki alveg jafn heimskur bara gleyminn...
en þeir færu nú ekki að auglýsa eitthvað sandblásun og svo er ekki hægt að sandblása felgurnar... þeir hljóta þá lika að vera með gler?

Posted:
Sun 18. Mar 2007 16:19
by Astijons
látin ganga og sett eitthvað polish dæmi á...
gleymdi einni setningu...
segir svo að ég sé heimskur... ;P

Posted:
Sun 18. Mar 2007 17:40
by DiddiTa
Pabbi lét sandblása og sprauta felgurnar á jeppanum hjá sér, kom bara vel út fannst mér en glerblástur á víst að vera með flottari áferð.
Sælll

Posted:
Mon 19. Mar 2007 16:52
by JonFreyr
Ég mæli með því að þú látir glerblása eða hreinlega plastblása felgurnar hjá þér. Sandblástur hentar afar illa á álfelgur vegna þess að áferðin verður frekar ljót þar sem að sandurinn á það til að "éta" sig aðeins lengra inn en glerið eða plastið. Pabbi minn var að fá felgur frá Pólýhúðun og þær eru alveg hreint glæsilegar, virðast vera alveg frábær vinnubrögð og vonandi verður endingin á þessu góð.
Farðu með felgurnar á dekkjaverkstæði, láttu affelga og hentu þessu í pólýhúðun. Ef að felgurnar eru ekki skemmdar á þann hátt að það þurfi að punkta í þær að þá er þetta straight-forward dæmi hjá þér
