Page 1 of 1

hitaskjöld

PostPosted: Wed 14. Mar 2007 23:43
by siggik1
Hvernig er það, er einhver nógu flinkur og hefur aðgang að tækjum til að gera hitaskjöld fyrir sýjur eða þarf maður að kaupa Custom að utan ?


er svona mikill munur á því og td hjá mér k&n í boxi ?

PostPosted: Thu 15. Mar 2007 11:03
by siggik1
enginn með orð í belg ?

PostPosted: Thu 15. Mar 2007 11:38
by gstuning
Blikk + Járnklippur ?
Eina sem þú þarft

PostPosted: Thu 15. Mar 2007 12:55
by siggik1
easy as abc 123..


þú segir nokk, en hvar getur maður keypt svona gúmmi kanta á þetta ?

PostPosted: Thu 15. Mar 2007 13:16
by Axel Jóhann
Ætti að fást í Byko. :)

PostPosted: Thu 15. Mar 2007 14:35
by hauksi
eða Bílasmiðnum.

PostPosted: Thu 15. Mar 2007 14:37
by arnibjorn
En að tala bara við blikksmið og spurja hvað hann myndi taka fyrir að búa til hitaskjöld? :)

Ef það er ekki mikill peningur þá væri það kannski ekkert vitlaust...

PostPosted: Thu 15. Mar 2007 14:37
by jens
Ég verð nú að viðurkenna fyrir kraftssamfélaginu að ég gerði tilraun til að smíða hlif úr blikki og hún varð svo ljót að ég henti henni. Hef séð þetta mikið smíðað úti úr plasti, hef bara ekki fundið heppilegt plast í þetta.

PostPosted: Thu 15. Mar 2007 14:51
by JOGA
Ég var að spá í að búa mér svona til um daginn en gerði reyndar ekkert í því :oops:

Ég var búinn að ákveða það að finna mér þokkalega stóran plastbrúsa og nota hann til að snýða til hlífina. Finna mér svo heppilegt hráefni og klippa/saga eftir skapalóninu.

Myndi prófa þá leiðina.

PostPosted: Thu 15. Mar 2007 15:49
by siggik1
jens wrote:Ég verð nú að viðurkenna fyrir kraftssamfélaginu að ég gerði tilraun til að smíða hlif úr blikki og hún varð svo ljót að ég henti henni. Hef séð þetta mikið smíðað úti úr plasti, hef bara ekki fundið heppilegt plast í þetta.


það var einmitt sem mér datt í hug, er plast ekki að einangra hitann betur ? en annars er frændi minn blikksmiður, gæti spjallað við hann

PostPosted: Thu 15. Mar 2007 18:17
by gunnar
Ég myndi smíða þetta út áli.. Ætti nú ekki að vera svo flókið ef maður er laghentur. Frekar bara stelast í festingar úr einhverju og festa þetta þannig.

PostPosted: Thu 15. Mar 2007 19:41
by Svíþjóð.
Reyklitað Plexi 4TW.

Akron selja þér plastið og epoxýefnið sem ÞARF til að líma.

PostPosted: Fri 16. Mar 2007 21:39
by Astijons
og bara nota epoxýefnið í kvöld eða annað kvöld og þá ertu kominn á rétta leið fyrir djammið..