Page 1 of 1
Vatn/móða

Posted:
Mon 26. Feb 2007 16:52
by Frikki
Var að pæla hvernig ég gæti losnað við pínu vatn eða móðu sem er innan á glerinu á hægra framljósinu ? Er ekki málið bara að taka þetta af (þá hvernig) og bara þurrka? Þetta kom um daginn þegar ég var að þrífa hann.
Takk.

Posted:
Mon 26. Feb 2007 17:07
by Elnino
pfff þetta er sko ekki fyrsti bíllinn sem er með þetta "vandamál"
virðist vera mjög algengt á e-90

Posted:
Mon 26. Feb 2007 17:10
by gunnar
Farðu með bílinn inn í hús sem er sæmilega heitt í, taktu peruna úr og leyfðu þessu aðeins að anda.
Þarft ekki að taka allt ljósið úr.

Posted:
Mon 26. Feb 2007 18:53
by xtract-
kom fyrir félaga minn á 2005 avensis, bíllinn ennþá í ábyrgð þannig að hann fór niður í umboð og lét skipta um ljós..

Posted:
Tue 27. Feb 2007 00:38
by Frikki
ok takk strákar..
hugsa að ég yrði ekki vinsæll niðrí B&L ef ég kæmi og bæði um nýtt ljós..
konan á verkstæðinu hatar mig nógu mikið eftir stóra fjarstýringar málið, úff hún er rosaleg


Posted:
Tue 27. Feb 2007 00:59
by IceDev
Það væri nú skrítið ef að bílar í ábyrgð væru svo ekki þjónustaðir af umboðinu sem tegundin er seld í
Maður myndi kannski láta þetta slide-a á Kia eða Daewoo....en BMW..
Kommon

Posted:
Tue 27. Feb 2007 06:39
by X-ray