Page 1 of 3

eitt og annað smálegt "vona ég"

PostPosted: Sun 25. Feb 2007 15:20
by Einsi320i
nr 1
miðstöðin virkar eitthvað illa eða bara í botnstillingunni mér var tjáð að þetta væri mótstaðan, veit einhver eitthvað um þetta

nr 2
móða inni í frammljósunum hvernig losnar maður við það ef það er hægt

nr 3 vantar hurðastrekkjara bílstjóramegin þetta er 320 i coupe 94

endilega látið mig vita ef þið vitið hvernig á að fixa þetta og hvað þetta er að kosta ca

kv Einsi

PostPosted: Sun 25. Feb 2007 15:43
by ömmudriver
1. PASS

2. Skrúfaðu ljósabotnana af í nokkra daga og skrúfaðu þá svo á aftur þegar móðan er farin.

3. B&L og kannski TB, kostaði ca. 2.000 kr. í sjöuna mína hjá B&L.

PostPosted: Sun 25. Feb 2007 16:26
by íbbi_
nr1, já þetta hljómar eins og mótstaðan

PostPosted: Mon 26. Feb 2007 10:58
by Astijons
skkkooo...
hættið að tala um einhverja mótstæður og kjaftæði...

komið með einhvern sem kann að laga þetta og tölu...

og hana nú...

PostPosted: Mon 26. Feb 2007 11:42
by hlynurst
Astijons wrote:skkkooo...
hættið að tala um einhverja mótstæður og kjaftæði...

komið með einhvern sem kann að laga þetta og tölu...

og hana nú...


Veit að félagi minn lenti í þessu á E39 og mótstaðan kostaði 10þ með góðum afslætti hjá B&L (hringja bara í B&L/TB og kanna verðið á þessu). Eflaust er hægt að fá Skúrabræður til að redda þessu fyrir sanngjarnt verð.

og hana nú...

PostPosted: Mon 26. Feb 2007 11:58
by saemi
Astijons wrote:skkkooo...
hættið að tala um einhverja mótstæður og kjaftæði...

komið með einhvern sem kann að laga þetta og tölu...

og hana nú...


:hmm:

Hætt þú nú bara að ybba gogg..

Settu frekar inn eitthvað vitrænna en að skammast í þeim sem hafa eitthvað vitrænt að segja.

Ef menn vilja fá einhvern til að laga þetta og tölu, þá tala þeir við verkstæði en setja ekki inn póst hérna.

:wink:

PostPosted: Mon 26. Feb 2007 12:02
by íbbi_
nákvæmlega sæmi,

svar ástajons var eitt það óþroskaðasta sem ég hef lesið hérna, þetta voru svör við því sem maðurinn spurði um, ef hann vill verð og menn sem geta lagað þetta getur hann hringt í B&L eða Tb eins og aðrir,

ef það er digital miðstöðin í honum getur mótstaðan verið töluvert dýrari,

kostar yfir 30k í minn

PostPosted: Mon 26. Feb 2007 12:05
by hlynurst
Já það kæmi ekki á óvart að þessi mótstaða kosti meira heldur en 10þ þar sem það var starfsmaður sem keypti hana á sínum tíma og hefur eflaust fengið veglegan afslátt.

Bílinn var hinsvegar með tölvustýrði miðstöð og verkið tók 5 mín fyrir þennan starfsmann.

PostPosted: Mon 26. Feb 2007 12:20
by Astijons
óþroskaðasta?
í gvuðanna bænum strákar...

PostPosted: Mon 26. Feb 2007 12:31
by saemi
Astijons wrote:óþroskaðasta?
í gvuðanna bænum strákar...


Nei.. ekki það óþroskaðasta. EITT það óþroskaðasta :lol:

PostPosted: Mon 26. Feb 2007 12:34
by Astijons
maður lifandi ...

meira nöldur hérna enn þegar ein af konunum mæta ekki í saumaklúbbinn hjá mömm...

PostPosted: Mon 26. Feb 2007 12:54
by bjahja
Astijons wrote:maður lifandi ...

meira nöldur hérna enn þegar ein af konunum mæta ekki í saumaklúbbinn hjá mömm...


Komandi frá manninum sem fór að nöldra þegar menn reyndu að hjálpa honum

PostPosted: Mon 26. Feb 2007 13:07
by Astijons
ég buinn að fá töluna á þetta...
ég er alveg þakklátur fyrir svörin hér ...
en að vera grenja yfir óþroskuð svör minnir mig bara eitthvað á ömmu mina...
en ... í hverjum stigagang þarf að vera nöldrari...

PostPosted: Mon 26. Feb 2007 13:14
by X-ray
saemi wrote:
Astijons wrote:óþroskaðasta?
í gvuðanna bænum strákar...


Nei.. ekki það óþroskaðasta. EITT það óþroskaðasta :lol:


Kristjan wrote:
IceDev wrote:Image



Að minnsta kosti fær þessi eitthvað smjör á humarinn, greinilega annað en hinn bitri vinur okkar.

PostPosted: Mon 26. Feb 2007 13:16
by Astijons
svo er það annað... ég skil svona eitt af hverjum þremum svörum hérna..
Kannski þarf maður að vera við hliðina á ykkur til að skilja ykkur...
hver veit