Page 1 of 1
Bleyta?

Posted:
Thu 22. Feb 2007 17:40
by Gunnar Þór
Var að ryksuga áðan (E36 coupe) og tók eftir bleytu undir teppinu hægra megin afturí. Hvaðan í fjandanum er líklegt að þetta komi - undirvagninum eða leki með glugga eða eitthvað?
Endilega komið með hugmyndir.

Posted:
Thu 22. Feb 2007 18:11
by Aron Andrew
Gat á botninum, útaf ryði eða einhverju álíka

Posted:
Thu 22. Feb 2007 18:32
by Twincam
Aron Andrew wrote:Gat á botninum, útaf ryði eða einhverju álíka
Athugaðu með alla gúmmítappa í gólfinu, hvort einhver þeirra sé laus eða búinn að láta sig hverfa


Posted:
Thu 22. Feb 2007 22:02
by Gunnar Þór
hvaða tappar eru það - er mikið af þeim?

Posted:
Thu 22. Feb 2007 22:17
by ömmudriver
Tveir afturí s.s. einn sitthvoru megin í gólfinu hjá farþegunum


Posted:
Thu 22. Feb 2007 22:41
by Gunnar Þór
hvaða tappar eru það - er mikið af þeim?

Posted:
Fri 23. Feb 2007 11:42
by moog
Ef þetta er Coupe þá er líka sterkur möguleiki að þetta sé leki útfrá afturgluggum. Ef klæðningin í innréttingunni afturí er ekki nógu þétt að glugganum þá lekur meðfram. Prófaðu að sprauta vatni á gluggann og tékkaðu hvort það komi eitthvað vatn inn í bílinn meðfram glugganum.
Tékkaðu líka hvort að bílbeltið blotni nokkuð við þetta þar sem bleytan getur leitað inn á milli klæðningarinnar.

Posted:
Fri 23. Feb 2007 22:08
by iar
Er ekki líka eitthvað niðurfall frá topplúgu sem á það til að stíflast og valda leka við gólfið? Gætir tékkað á því.

Posted:
Sat 24. Feb 2007 11:46
by Gunnar Þór
Það er ekki lúga en ég ætla að tékka á þessu með gluggann - ekki frá því að mig minni að öryggisbeltið hafi verið blautt eftir rigningu einhverntímann!
Ef svo er, er þá gúmmíþéttilistar sem þarf að skipta um eða...?

Posted:
Sat 24. Feb 2007 13:17
by moog
Gunnar Þór wrote:Það er ekki lúga en ég ætla að tékka á þessu með gluggann - ekki frá því að mig minni að öryggisbeltið hafi verið blautt eftir rigningu einhverntímann!
Ef svo er, er þá gúmmíþéttilistar sem þarf að skipta um eða...?
Gæti verið að þú þyrftir að gera það.
Í mínu tilfelli þá slapp það með því að losa um klæðninguna og leggja hana aftur þéttar að glugganum.
Getur prufað það fyrst áður en þú ferð í að kaupa nýtt.