bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Ryðvörn https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=20391 |
Page 1 of 1 |
Author: | Leikmaður [ Tue 20. Feb 2007 00:17 ] |
Post subject: | Ryðvörn |
Sælir Hafa menn hérna sem hafa verið að taka bíla að utan e-ð verið að standa í að ryðverja þá, annað hvort með gömlu góðu tjörudrullunni eða þá með annars kvoðujukki? (sýnist allir notaðir US og EU bílar koma allsnaktir hvað það varðar). Þá er ég fyrst og fremst að spá vegna hljóðeinangrunar og að sjálfsögðu til að verja frá saltpæklinum. Kv. JKH |
Author: | Einarsss [ Tue 20. Feb 2007 08:22 ] |
Post subject: | |
Lét ryðverja minn með tjöru drullunni uppá höfða ... tók einhvern lúxus pakka á 28 þúsund og þá var undirvagninn tekinn og inní hurðar og hólf. |
Author: | gunnar [ Tue 20. Feb 2007 08:58 ] |
Post subject: | |
Ég er einmitt í sama pakka á E30 hjá mér. Ég veit ekki hvort maður eigi að láta ryðverja. Ég mun ekki koma til með að nota bílinn á veturnar þannig ég veit ekki hvort þess þurfi. Hvað segja menn ? |
Author: | Einarsss [ Tue 20. Feb 2007 09:00 ] |
Post subject: | |
gunnar wrote: Ég er einmitt í sama pakka á E30 hjá mér. Ég veit ekki hvort maður eigi að láta ryðverja. Ég mun ekki koma til með að nota bílinn á veturnar þannig ég veit ekki hvort þess þurfi.
Hvað segja menn ? better safe then sorry ![]() |
Author: | gunnar [ Tue 20. Feb 2007 09:03 ] |
Post subject: | |
Tja menn hafa nú samt haft misskiptar skoðanir á þessari ryðdrullu en það er auðvitað gott að fá einangrun í bílinn þar sem E30 er nú ekki þéttasti bíllinn. |
Author: | íbbi_ [ Tue 20. Feb 2007 09:32 ] |
Post subject: | |
mjög skiptar skoðanir um ágæti þessa riðvarna, hinsvegar hljóðeinangrar þetta, átti bíl með þessu og lét úða aftur undir hann og heyrði hellings mun |
Author: | JOGA [ Tue 20. Feb 2007 10:14 ] |
Post subject: | |
Á eldri bílum hef ég ágæta trú á þessu. En það þarf klárlega að passa sig þegar verið er að ryðverja gamlan bíl. Passa að útrýma „opnun” sárum og að það komist ekki vatn undir ryðvörnina. Það er ágætis regla að fara með bíl í ryðvörn á föstudagsmorgni. Biðja þá um að smúla undirvagninn samdægurs og ryðverja hann svo eftir helgina og reyna að semja um að bíllinn sé geymdur inni þangað til. Þá er hann orðinn þurr og flottur... |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |