Page 1 of 1

Flökt á hitamæli - e36 ´97 323i

PostPosted: Mon 19. Feb 2007 12:59
by Giz
Sælir

Var í langferð um helgina sem er svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir það að á heimleiðinni í gær fór hitamælirinn aðeins að hreyfa sig niðurávið. Það gerðist einungis þegar keyrt var niður brekku og jafnaði sig þegar komið var aftur á jafnsléttu. Hann hitaði sig hinsvegar aldrei.

Um er að ræða e36, 12/97 ekinn 126000 km. með pottþétta servisbók.

Ég þykist hafa hlerað að um sé að ræða vatnslás sem er í einhverju pikklesi og læt því skipta um það hið fyrsta.

Hinsvegar langaði mig að spyrja hvort ég ætti að láta skipta um dæluna líka eða bara allt gillemóið eins og að neðan:
Image

Hallast helst að því að láta bara skipta öllu draslinu út og vera búinn að því.

Annað er svo, er ekki í lagi að keyra bílinn innibæjar þangað til hann fær tíma hjá umboðinu? ekki langar keyrslur, bara í vinnu og heim, nenni ekki að labba;-)

G

PostPosted: Mon 19. Feb 2007 13:12
by Jss
Ef þú ætlar að láta skipta um vatnslásinn þá myndi ég líka láta skipta um vatnsdæluna, mjög algengt í E36 bílunum að í þeim sé vatnsdæla með plasthjóli sem á það til að brotna, í staðinn ætti því að fara vatnsdæla með málmhjóli sem eru að endast betur. Þó gæti verið að vatnsdælan í þínum sé nú þegar með málmhjólinu.

PostPosted: Mon 19. Feb 2007 13:21
by BjarkiHS
bara láta skipta um dæluna líka, það er ekkert vit í öðru :wink: :oops: það er einmitt plasthjól í mínum, sem gaf sig á leiðinni upp hellisheiði í fyrrasumar, þannig að bullsauð á mínum..... :oops:

PostPosted: Mon 19. Feb 2007 13:35
by Alpina
Jss wrote:Ef þú ætlar að láta skipta um vatnslásinn þá myndi ég líka láta skipta um vatnsdæluna, mjög algengt í E36 bílunum að í þeim sé vatnsdæla með plasthjóli sem á það til að brotna, í staðinn ætti því að fara vatnsdæla með málmhjóli sem eru að endast betur. Þó gæti verið að vatnsdælan í þínum sé nú þegar með málmhjólinu.


Hef einmitt heyrt af þessu vandamáli frá ..Skúra-Bjarka..

PostPosted: Mon 19. Feb 2007 15:12
by jonthor
jebb, þekki þetta vel. Þetta fór hjá mér um svipað leiti og um að gera að skipta bara um allt klabbið strax.