Page 1 of 1

Það kom að því að það bilaði...

PostPosted: Sun 18. Feb 2007 01:10
by Icekorn
Jæja spekingar, þannig vildi til að ég var úti að aka á minni BMW bifreið í mestu makindum þegar allt í einu hann missir máttinn og á endanum drepur á sér. Núna fer hann ekki í gang aftur. Hann startar og það er nóg bensín á bílnum. Reyndar gekk hann í svona 1 sek þegar ég prófaði að starta eftir að hafa beðið í svolítinn tíma.

Bensíndæla eða relay, bensínsía???

PostPosted: Sun 18. Feb 2007 01:33
by siggir
Hljómar mikið eins og að dælan hafi gefist upp...

PostPosted: Sun 18. Feb 2007 01:41
by BjarkiHS
siggir wrote:Hljómar mikið eins og að dælan hafi gefist upp...



Hljómar AKKURAT eins og dælan hafi gefist upp :?

PostPosted: Sun 18. Feb 2007 10:38
by Icekorn
Jamm, það var það sem manni datt fyrst í hug...
En hvar er relay-ið fyrir hana og dælan sjálf?

Já og þetta er E36 með M52B20

PostPosted: Sun 18. Feb 2007 13:51
by Tommi Camaro
Icekorn wrote:Jamm, það var það sem manni datt fyrst í hug...
En hvar er relay-ið fyrir hana og dælan sjálf?

Já og þetta er E36 með M52B20

kiftu upp sætinu að aftan og svissaðu á bíll þá heyrir hvort hún fer í gang eða ekki (bensíndælan)
á til dælu í þetta hef hún er farin.
gæti líka verið air/flow skynnjarinn sé ónýtur.

PostPosted: Sun 18. Feb 2007 18:46
by bragi1
Þetta kom fyrir hjá mér og þá voru kertin og háspennukeflinn búinn. Reyndar gerðist það ekki beint óvænt þar sem bíllinn var búinn að vera í fýlu í smá tíma.

PostPosted: Sun 18. Feb 2007 20:38
by Icekorn
Getur einhver sagt mér hvaða relay er fyrir bensíndæluna????

PostPosted: Tue 20. Feb 2007 12:28
by Angelic0-
er það ekki yfirleitt hvítt relay merkt 723...

annars man ég þetta ekki hef ekki þurft að standa í þessu :P

PostPosted: Sat 24. Feb 2007 16:04
by Icekorn
Kominn í lag! :mrgreen:
Dælan var dáin