Sælir
Var í langferð um helgina sem er svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir það að á heimleiðinni í gær fór hitamælirinn aðeins að hreyfa sig niðurávið. Það gerðist einungis þegar keyrt var niður brekku og jafnaði sig þegar komið var aftur á jafnsléttu. Hann hitaði sig hinsvegar aldrei.
Um er að ræða e36, 12/97 ekinn 126000 km. með pottþétta servisbók.
Ég þykist hafa hlerað að um sé að ræða vatnslás sem er í einhverju pikklesi og læt því skipta um það hið fyrsta.
Hinsvegar langaði mig að spyrja hvort ég ætti að láta skipta um dæluna líka eða bara allt gillemóið eins og að neðan:
Hallast helst að því að láta bara skipta öllu draslinu út og vera búinn að því.
Annað er svo, er ekki í lagi að keyra bílinn innibæjar þangað til hann fær tíma hjá umboðinu? ekki langar keyrslur, bara í vinnu og heim, nenni ekki að labba;-)
G