Page 1 of 1

Skynjaravesen

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 23:01
by gunnar
Er í smá veseni með skynjarann í bremsuklossanum að framan hjá mér.

Dótið sem ég keypti frá Sveinbirni, ss klossarnir sem eru í dælunum að framan eru ekki með skynjurum.

Skynjararnir á gömlu klossunum, (sem er orðnir of slitnir til að nota ) eru fastir á.

Sjá útskýringar á mynd.

Image

Þannig að,,,,

Ætti ég bara að sleppa þessu, væntanlega hægt að flassa skynjarann bara þannig að tölvan skynji það ekki.

Eða er einhver leið til þess að græja þetta?

Tók líka eftir því að á klossunum aftan á þá er þetta allt öðruvísi.Þar er þessu smellt á einhvern veginn.

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 23:14
by siggir
Ég nennti nú ekki að pæla í þessum skynjara þegar ég var með þetta í höndunum síðast. Reif bara vírana úr, sneri þá saman og teipaði. Þetta hefur verið til friðs.

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 23:16
by gunnar
Er svona að pæla í að gera það..

Hef bara smá áhyggjur að verða bremsulaus á autobahninum , ekki gaman að hafa járn í járn þar..

En ég verð bara að fylgjast með klossunum.

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 23:33
by siggir
Hef verið í svipuðum pælingum þar sem ég stefni sjálfur á ferð í sumar. Held að skynsemin sé besta vopnið í þessu. Skipta bara áður en maður fer út og hafa með sér auka gang ef maður skildi klára hina á slaufunni ;)

PostPosted: Wed 14. Feb 2007 23:46
by ///M
Kaupir bara nýja klossa áður en þú ferð út :)

PostPosted: Thu 15. Feb 2007 09:43
by gunnar
Hvernig er það, klossar sem fást til dæmis í stillingu og poulsen og svona, eru þeir með þessa skynjara eða hvað ?

PostPosted: Thu 15. Feb 2007 11:24
by Jökull
Ég færi bara uppí B&L og kaupa nýtt stuff í þetta,

þetta er allt til og kostar 8.025 kr með 10% kraftsafslætti :)

Image

PostPosted: Thu 15. Feb 2007 12:07
by gunnar
Já en þetta kostar 3000 og einhvað í poulsen án afsláttar sem er 25 % :lol:

Ég kíkti í poulsen áðan, og þar var skynjarinn með... EN!, hann var ekki fastur á ... Ætlast þeir til að maður hnoði þetta anskotans drasl á eða hvað?

PostPosted: Thu 15. Feb 2007 12:16
by Jökull
Skynjarinn smellist bara í gatið sem er fyrir hann, er ekki svona lítill pinni á skynjaranum ???

PostPosted: Thu 15. Feb 2007 14:53
by gunnar
Fékk bara nýjann skynjara í BogL á tombóluverði,,, 8)