Skifti um bremsudiska

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Skifti um bremsudiska

Postby Ozeki » Sat 19. Jul 2003 23:37

Jæja, ég var í Danmörku í síðustu viku í nokkra daga fríi og renndi við hjá BMWspecialisten.dk í Odense.

Hélt nú reyndar að það væri ekkert mál að finna þá, búinn að búa í Odense í tæp 6 ár ... en það var ekki svo auðvelt. Keyrði framhjá tvisvar áður en ég fann götuna sem ég átti að fara.
Ef einhver ætlar að fara þetta þá er í stuttu máli ekið út Rudgårdsvej frá Odense, þar til maður kemur til Korup, þá er að líta eftir Sandvadgyden á hægri hönd og svo er aftur beygt til hægri á Sandvadvej og þar finnur maður þá.

þá var að kaupa það sem vantaði, neflega eina hjólalegu. Það kom í ljós í ókeypis ástandsskoðuninni um daginn að það var komið eitthvað slit í eina þeirra, verð í B&L 16.000, TB 9000, þarna úti 4500 með skatti sem ég ætla svo að reyna að fá tilbaka.
Það var svo sem ekki hægt að koma þarna við og kaupa bara leguna, svo ég keypti alla bremsudiskana, þessa boruðu :


Image

keypti þá klossana náttúrulega líka og svo tvo liði í balansstöngina, í alt 2.500 dkr.

Smá útúrdúr, ég var þarna að keyra um á nýjum Audi A4 :

Image

lagt í skuggan í 29 stiga hita svo maður stiknaði ekki þegar átti að fara af stað aftur !

Það var ekki nema 1600 vél í honum, svo þetta var engin rakketta, en hann eyddi ekki miklu

Image

Þarna má sjá að ég var búinn að keyra rétt tæpa 700 km og það stendur að 'range' sé 320 km á því bensíni sem eftir er. Ég keyrði bílinn reyndar í um 2 1/2 klukkutíma á um 140 km hraða og tankaði þegar hann var kominn í 1000 km. og þá fóru 60 lítar á hann !!! en það gerir um 6 l/100km. Þetta var um 9:30 um morguninn og hitinn ekki kominn í nema um 21,5 gráður, en mikill hluti af keyrslu var með air condition á líka, svo mér þykir 6 lítrar á hundraðið alveg lýgilegt...

Allavega, aftur í BMW heiminn. Ég pakkaði öllu draslinu niður, hmmm taskan kominn í 45 kíló. Var að velta því fyrir mér hvort ég þyrfti að múta einhverjum til að fá að taka hana með í flugið :-) En það gekk eins og smurt, ekkert vesen.

Í dag var ég svo að henda þessu öllu í bílinn, ætlaði reyndar að setja bara leguna í sjálfur en það er einhver 35-36 mm ró á öxlinum sem ég bara hef ekki lykil í, svo ég verð að fara með hann í B&L í það.
En diskarnir fóru allir í og líta bara vel út :-) Hörkubremsur.

Fór í bílanaust til að kaupa 7mm sexkantinn til að losa bremsudælurnar og keypti 2 lítra af bremsuvökva til að skifta honum út. Notaði Pípettu til að sjúga allt upp úr forðabúrinu eftir að vera búinn að setja nýja dótið í. Hellti á nýjum vökva og tappaði af eftir kúnstarinnar reglum, byrja á hjólini fjærst dælu og enda á því næsta. Síðan út í bíltúr og negla bremsurnar nokkrum sinnum til að fá ABS í gang. Síðan að skifta út bremsuvökvanum aftur.

Eftir stendur bílinn með flotta diska og bremsu sem virka 8)
User avatar
Ozeki
Kassabílstjóri
 
Posts: 167
Joined: Wed 16. Oct 2002 15:12
Location: Hér og Nú

Postby Alpina » Sun 20. Jul 2003 16:50

HAHAHAHA
Ég var á undan,,,,,,,,,,
Er búinn að vera með diskana ca.1/2 mánuð og þetta virkar mjög svipað
á rólegu nótunum en ef þú ert á hraðanum og BBREMSSSSSSSS
þá gerist það og eins og unglingarnir segja

ÞOKKALEGA KÚL


Sv.H.
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby bjahja » Mon 21. Jul 2003 03:16

Mig langar rosalega í svona diska, reyndar meira í porsche diskana en held að maður láti svona nægja fyrst.
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby flamatron » Tue 22. Jul 2003 20:55

Eyða þeir ekki bremsu púðunum fyrr.?
Tómas
BMW 325ic '95
Isuzu Trooper '99
User avatar
flamatron
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1387
Joined: Sat 31. Aug 2002 17:41

Postby oskard » Tue 22. Jul 2003 21:16

væntanlega :)
oskard
 

Postby Haffi » Tue 22. Jul 2003 21:18

Mig grunar að þetta virki eins og ostaskeri á púðana.
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Haffi » Tue 22. Jul 2003 21:18

haha gg það eru púðar á reiðhjólinu mínu..... KLOSSANA! :d
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Ozeki » Thu 24. Jul 2003 18:09

hmmm .... ég hugsa nú ekki að þetta sé að skræla klossana eins og ostaskeri !

Enda eru boraðir og fræstir diskar í mörgum græjum og nánast öllum mótorhjólum og nýtast alveg ágætlega án þess að spæna upp klossunum.

Boraðir og fræstir diskar eru helst til þess gerðir að halda klossunum (og disknum) hreinum með því að raspa aðeins af klossunum. En vonandi spæna þeir þeim ekki upp í hvelli. Kæling á svona diskum er ekkert betri en standard diskum.
Í einhverjum tilfellum var síðan brugðið á það ráð að bora diska hreinlega til að létta þá, og þar með minnka ófjaðraða þyngd.

Ég valdi þetta nú bara fyrir útlitið :)

Það má finna helling af umfjölum um þetta á netinu með því að fara á leitarvef og slá inn "drilled brake disks"

En þetta er sem sagt komið undir og ég skal pósta strax og mér sýnist klossarnir vera á góðri leið með að verða að ryki :)
User avatar
Ozeki
Kassabílstjóri
 
Posts: 167
Joined: Wed 16. Oct 2002 15:12
Location: Hér og Nú

Postby Alpina » Thu 24. Jul 2003 18:32

Þetta eru orð að sönnu hjá Ozeki........
en á miklum hraða og BREMSSSSS þá finnurðu muninn :D :D

Sv.H
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby bjahja » Fri 25. Jul 2003 02:34

En hjálpa ekki rifurnar við að losa gasið sem myndast á milli klossans og disksins. Maður hefur heyrt það að ef maður neglir niðrur nokkrum sinnum í röð geti það komið fyrir að bílinn bremsi bara ekki, og þetta á að koma í veg fyrir það. Þetta las ég einhverstaðar.

En síðan er þetta að sjálfsögðu aðalega uppá lúkkið :wink:
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby arnib » Fri 25. Jul 2003 09:17

Þið eruð algjörir!

Síðan hvenær eru drilled/slotted diskar aðallega fyrir útlitið!!
Manni blöskrar hérna! :D

Þið vitið að það er hægt að kaupa svona skífur sem maður setur
bakvið felguna sína, uppí Tómstundahúsi
sem lítur út eins og maður sé voða stórar og flottar bremsur :!:

:twisted:
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby benzboy » Fri 25. Jul 2003 09:33

Er það RICE :o
XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
B3 biturbo 2008 #101 (on it's way)
User avatar
benzboy
Getawaybílstjóri
 
Posts: 834
Joined: Sat 03. May 2003 18:27

Postby arnib » Fri 25. Jul 2003 09:35

benzboy wrote:Er það RICE :o


Skífurnar í tómstundahúsinu??

Ójá :)
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby benzboy » Fri 25. Jul 2003 09:36

agree
XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
B3 biturbo 2008 #101 (on it's way)
User avatar
benzboy
Getawaybílstjóri
 
Posts: 834
Joined: Sat 03. May 2003 18:27

Postby GHR » Sat 26. Jul 2003 17:22

Ég held að ég hafi séð bílinn þinn áðan Ozeki.
Helv... flott að hafa svona diska, sjást mjög vel. Ég var að keyra upp breiðholtsbrekkuna fyrir aftan þig og held allavega að þetta hafi verið þinn bíll (BMW 520 - blár)
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól
GHR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1690
Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Location: BIRK

Next

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 6 guests