Page 1 of 1

Skrýtið vandamál

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 20:46
by bragi1
Ég er vanur að bíllinn sé leiðinlegur í frostinu en það kom alveg ótrúlegur hlutur fyrir núna um helgina. Ég setti bílinn inn í skúr til að dútla í honum þannig að hann upplifði frostleysi í fyrsta skipti þónokkurn tíma, og viti menn: hann vill ekki í gang! Svona svo það fylgi með þá kom ég ekki nálægt hesthúsinu, var bara að skipta um samlæsingamótor og beltisstrekkjara aftur í. Hljómar fáránlega en er eitthvað sem getur klikkað þegar bíllinn þiðnar?

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 20:49
by srr
Rakamyndun einhversstaðar í kveikjunni ?

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 20:57
by bragi1
Ætti kannski að taka fram að hann fór í gang fyrst og hékk í gangi í nákvæmlega eina og hálfa sekúndu.

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 23:40
by Helgi M
srr wrote:Rakamyndun einhversstaðar í kveikjunni ?


Ef að hann startar en vill ekki í gang þá held ég að það gæti vel verið, prufaðu að starta ljúflega lengur en venjulega og purafðu hvort hann tekur ekki meira og meira við sér.....

Svipað og þegar ég lenti í þessu.. :)

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 23:41
by srr
Taka þetta bara í sundur og þurrka :wink:

PostPosted: Tue 23. Jan 2007 12:33
by bragi1
Jæja ég gefst upp. Það er eins og startarinn snúi en vélinn ekki. Þegar ég lenti í þessu síðast á bíl var startkransinn (ef það heitir það nú ekki örugglega) farinn. Svo to TB we go.