Page 1 of 1

Læsing

PostPosted: Sat 20. Jan 2007 13:48
by Misdo
alltaf þegar ég læsi bílnum
það er samlæsing
allavegana ég læsi svo opnast hann sjálfkrafa aftur
hef tékkað hvort einhvað sé opið hurð gluggi enn það er ekkert
hvað er eigilega málið

ég set lykilinn í gatið læsi svo fara pinnarnir sjálfkrafa upp aftur og bíllinn læsist ekki

þarf alltaf að setja alla pinnana niður sjálfur
enn hvað er málið ?

PostPosted: Sat 20. Jan 2007 14:03
by ValliFudd
er takkinn farþegamegin frammí frosinn fastur uppi?
Spurning um að afþýða kvikindið? :)

PostPosted: Sat 20. Jan 2007 15:37
by gunnar
ValliFudd wrote:er takkinn farþegamegin frammí frosinn fastur uppi?
Spurning um að afþýða kvikindið? :)


Bimmar virðast ekkert voðalega hrifnir af frosti..

PostPosted: Sat 20. Jan 2007 17:25
by Lindemann
ég lenti í nákvæmlega þessu á mínum bíl :lol:

Endaði með að ég reif úr sambandi plögg í bílstjórahurðinni og þá get ég læst bílstjóramegin, opnað farþegamegin og get bæði opnað og lokað á skott cylendernum.....

Ég held þetta sé rofinn fyrir samlæsinguna í bílstjórahurðinni.

PostPosted: Sat 20. Jan 2007 19:07
by Misdo
gunnar wrote:
ValliFudd wrote:er takkinn farþegamegin frammí frosinn fastur uppi?
Spurning um að afþýða kvikindið? :)


Bimmar virðast ekkert voðalega hrifnir af frosti..


það gæti verið málið því þetta var ekki svona þegar það var ekki svona djöfulli kalt