Page 1 of 1

Tímareim - Tímakeðja

PostPosted: Sat 20. Jan 2007 01:01
by bErio
Jæja ég var að fá mér minn fyrsta BMW.

Þetta er 316 bíll sem er ekki ekinn nema 92þúsund km og 98 árgerð :wink:
Allur samlitaður og með m-tech kitti, rafmagn í öllu og hvaðeina.

En það sem ég er að pæla í er.. hvort er tímareim eða timakeðja í þessum bílum? Var að pæla vegna þess að ég veit EKKERT um þessar vélar og er að spurja hérna til þess að læra meira inn á kvikindið :wink:

Von um góð svör.
Sævar.

.

PostPosted: Sat 20. Jan 2007 01:09
by Wolf
Væntanlega M43B16 = Keðja

PostPosted: Sat 20. Jan 2007 13:08
by bErio
Aight, það þarf líklega að skipta um keðju einhvertiman en ég veit ekki hvenær.
Getur einhver sagt mér hvenær það þyrfti að gera?

PostPosted: Sat 20. Jan 2007 13:58
by 98.OKT
það ÆTTI ekki að þurfa að hafa miklar áhyggjur af keðjunni fyrr en kannski í 250.000+kílómetrum þó að það geti alltaf komið upp einhver galli eins og með einn bimman sem ég átti, í honum þurfti að skifta um í 170.000 vegna þess að það var farið að heyrast eitthvert hljóð frá keðjunni :?

PostPosted: Sat 20. Jan 2007 15:54
by bErio
Snilld takk :wink:

PostPosted: Sat 20. Jan 2007 18:35
by IvanAnders
Það má alveg fara að hafa áhyggjur af keðjunni/strekkjaranum í 200k :)

PostPosted: Sat 20. Jan 2007 23:38
by Svessi
IvanAnders wrote:Það má alveg fara að hafa áhyggjur af keðjunni/strekkjaranum í 200k :)


Þú meinar að það má fara kíkja á þetta og athuga hvort ekki sé allt í góðu standi ennþá.

---

Í fyrsta lagi ertu viss um að það sé þessi M43B16 vél sé í bílnum.
Því mig langar bara að benda á að þær BMW vélar sem hafa verið með tíma-reim hafa ekki haft góða endingu um tíðina.
Sem dæmi má nefna að ég hef aldrei nokkurtíma áður séð eins stuttann tíma gefinn upp frá framleiðenda eins og var á gamla 518i ´91 bílnum mínum, man ekki vélartýpunúmerið, 1800cc 115hp innspýtingarmótor.
Eða semsagt mælt með tímareimaskiptum á 40.000 km fresti.
Venjulega er maður að sjá tölur á milli (60)-70-100 þús km hjá öðrum framleiðendum.

PostPosted: Sun 21. Jan 2007 02:12
by gunnar
Það er nú bara svipað í Opel og öðrum skáeygðum druslum mörgum.

Fór einmitt einn opel yfir á tíma hjá okkur í vinnunni. Slitnaði reiminn og ventlar festust og ýmislegt. Mótorinn rifinn út og draslið sett saman aftur seinna um kvöldið og farið að virka ftur :lol:

PostPosted: Sun 21. Jan 2007 14:10
by ValliFudd
úff, þegar tímareimin fór í gamla 318 e36 mínum.. sem er núna með einkanúmerið FULLUR.. Þá kostaði það 180 þúsund hjá TB :?

Og 2 mánuðum síðar sprengdi ég vélina og allt í skrall aftur.. meira ruglið.. Eftir það er ég skíthræddur við þetta tímareimavesen allt saman...

Er ekki keðja í M52? Hann dettur í 200 þús í vikunni, spurning hvort maður eigi að fara að láta kíkja á þetta..

PostPosted: Sun 21. Jan 2007 19:10
by Stefan325i
gunnar wrote:Það er nú bara svipað í Opel og öðrum skáeygðum druslum mörgum.

Fór einmitt einn opel yfir á tíma hjá okkur í vinnunni. Slitnaði reiminn og ventlar festust og ýmislegt. Mótorinn rifinn út og draslið sett saman aftur seinna um kvöldið og farið að virka ftur :lol:


Síðan hvenar er ópel skáeygður

PostPosted: Sun 21. Jan 2007 19:21
by ///M
Stefan325i wrote:
gunnar wrote:Það er nú bara svipað í Opel og öðrum skáeygðum druslum mörgum.

Fór einmitt einn opel yfir á tíma hjá okkur í vinnunni. Slitnaði reiminn og ventlar festust og ýmislegt. Mótorinn rifinn út og draslið sett saman aftur seinna um kvöldið og farið að virka ftur :lol:


Síðan hvenar er ópel skáeygður


:lol: :lol: :lol: