Page 1 of 2

E30 Hurð

PostPosted: Sun 14. Jan 2007 15:33
by Aron Andrew
Hurðinn á bílnum mínum lokast ekki, það virðist vera í lagi með það sem er í hurðinni, þ.e. ég get smellt því upp með puttunum og það festist og opnast þegar ég tek í húninn. En þegar ég skelli hurðinni þá er eins og hún nái ekki að smella föst.

Fyrst hélt ég að þetta væri útaf frostinu en ég er búinn að þýða þetta og smyrja, en ekkert gerist.

Hefur einhver hugmynd um hvað gæti verið að?

PostPosted: Sun 14. Jan 2007 15:46
by Alpina
Frosin..

farðu og láttu bílinn þiðna

PostPosted: Sun 14. Jan 2007 18:55
by Helgi M
Lenti í því sama hjá mér og gluðaði prolong á þetta og hefur ekki skeð síðan.. :)

PostPosted: Sun 14. Jan 2007 19:15
by íbbi_
E32 bílarnir mínir gerðu þetta ALLTAF í frosti og E38 bíllin veður hálf ruglaður í soft close-inu á skottinu í sona miklu frosti

PostPosted: Sun 14. Jan 2007 19:18
by Hlynzi
Þetta er frosið (er alltaf að ske á 730i bílnum hans Binna).

Þetta hefur yfirleitt komið eftir svona 20 tilraunir til að hreyfa þetta og loka þessu, og spreyja þetta svo. Virðist vera sem það safnist raki þarna í lásinn og þeir festast.

PostPosted: Sun 14. Jan 2007 19:19
by íbbi_
þetta er í raunini það sama og er að valda því að hurðarnar festast alveg á E38/39, kemst raki inn í skránna og hún festist í lás

PostPosted: Sun 14. Jan 2007 19:20
by Aron Andrew
En ég get samt smellt í lás með hurðina opna, ef þið skiljið hvað ég á við :?

PostPosted: Sun 14. Jan 2007 19:22
by Hlynzi
Aron Andrew wrote:En ég get samt smellt í lás með hurðina opna, ef þið skiljið hvað ég á við :?


Hvaða hurð á bílnum er þetta. Hitt læsingavandamálið sem við lentum í var eitthvað samspil barnalæsingar, samlæsingar og hurðaropnarans.

PostPosted: Sun 14. Jan 2007 19:24
by Aron Andrew
Hlynzi wrote:
Aron Andrew wrote:En ég get samt smellt í lás með hurðina opna, ef þið skiljið hvað ég á við :?


Hvaða hurð á bílnum er þetta. Hitt læsingavandamálið sem við lentum í var eitthvað samspil barnalæsingar, samlæsingar og hurðaropnarans.


Farþegahurðin, það er hvorki barnalæsing né samlæsing þannig það er pottþétt ekki vandamálið :lol:

PostPosted: Sun 14. Jan 2007 19:42
by Hlynzi
Aron Andrew wrote:
Hlynzi wrote:
Aron Andrew wrote:En ég get samt smellt í lás með hurðina opna, ef þið skiljið hvað ég á við :?


Hvaða hurð á bílnum er þetta. Hitt læsingavandamálið sem við lentum í var eitthvað samspil barnalæsingar, samlæsingar og hurðaropnarans.


Farþegahurðin, það er hvorki barnalæsing né samlæsing þannig það er pottþétt ekki vandamálið :lol:


Hurðin lokaðist þegar ég hélt inni hurðarhúninum inni og opnaði og lokaði, eða ég tel það.

Annars ef það gengur ekki mæli ég með þessu:

Image

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 13:53
by X-ray
Helgi M wrote:Lenti í því sama hjá mér og gluðaði prolong á þetta og hefur ekki skeð síðan.. :)



Hvar fæst þetta efni ?

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 13:59
by Aron Fridrik
Hlynzi wrote:
Aron Andrew wrote:
Hlynzi wrote:
Aron Andrew wrote:En ég get samt smellt í lás með hurðina opna, ef þið skiljið hvað ég á við :?


Hvaða hurð á bílnum er þetta. Hitt læsingavandamálið sem við lentum í var eitthvað samspil barnalæsingar, samlæsingar og hurðaropnarans.


Farþegahurðin, það er hvorki barnalæsing né samlæsing þannig það er pottþétt ekki vandamálið :lol:


Hurðin lokaðist þegar ég hélt inni hurðarhúninum inni og opnaði og lokaði, eða ég tel það.

Annars ef það gengur ekki mæli ég með þessu:

Image


:lol2:

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 14:23
by ömmudriver
íbbi_ wrote:E32 bílarnir mínir gerðu þetta ALLTAF í frosti og E38 bíllin veður hálf ruglaður í soft close-inu á skottinu í sona miklu frosti


Voðalega hefur þú átt leiðinlega bíla :shock: Sjöan mín hefur gert þetta MAX fimm sinnum, þetta gerðist aldrei á þristinum mínum og fimman hefur ekki ennþá vogað sér að gera þetta :-s

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 14:51
by íbbi_
svarta sjöan sona.. átti þetta til, en grá sjöan alveg klikkaði ekki.. ef það var forst þá vildi hún ekki loka afturhurðunum

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 20:45
by Lindemann
íbbi_ wrote:svarta sjöan sona.. átti þetta til, en grá sjöan alveg klikkaði ekki.. ef það var forst þá vildi hún ekki loka afturhurðunum


minn bara vill ekki opna afturhurðarnar......helst aldrei :lol: