Page 1 of 1

Jólagetraun - E36 vandræði / aflleysi

PostPosted: Thu 21. Dec 2006 00:42
by Prez
Sælir, ég er í talsvert miklum vandræðum með þristinn.

Ég var á leiðinni norður í land sl mánudag þegar bíllinn drepur skyndilega á sér. Eftir talsverða yfirferð kemst ég að því að bensíndælan virðist hafa geyspað golunni. Ég fæ nýja orginal Bosch dælu í bílanaust og smelli henni í. Allt virðist í himnalagi. Ég er ekki búinn að keyra nema í c.a. 1/2 klst þegar ég kem að brekku og þá verð ég þess var að bíllinn hefur misst umtalsvert afl. Ég er búinn að velta því fyrir mér að prófa aðra bensíndælu, þó mér þyki hæpið að það sé eitthvað að dælunni þar sem hún er glæný. Bíllinn gengur á öllum, búinn að skoða öll kerti og allt virðist í þessu fína, lausagangurinn eins og best verður á kosið. Upptakið á lágum snúningi er ágætt, finn lítinn mun á því, aðallega er þetta td þegar ég ætla að taka frammúr bíl og fara upp brekku..

Ég er að pæla..
- Gæti verið að bíllinn sé á einhvernskonar "Limp home mode" eftir að dælan andaðist? Og endurstillist það ef ég tek af geymunum yfir nótt?
- Stóra bensínsían / sem er undir bílnum, getur hún verið farin & hægt á bensínrennslinu þegar bíllinn er undir fullu álagi?
- Ætli stíflaður hvarfakútur geti ollið þessu? Eða Map / o2 skynjarar?
- Eru þessar vélar með tímareim eða keðju? Gæti hann hafa farið yfir á tíma?

Og já til að fyrirbyggja allan misskilning, þá er bíllinn lengst austur í rassgati og ekki hægt að skreppa í TB / B&L í aflestur.

Endilega ausið úr viskubrunnum ykkar!

Jólakveðjur að norðan

PostPosted: Thu 21. Dec 2006 06:14
by lulex
ef þú ert staddur i höfuðborg norðursins.. mæli eg með að þú farir bara strax og tjekkir hvort þeir hjá bifreiðaverkstæði bjarnheðins geti ekki lesið af bilnum hja þér...


minnir að eg hafi borgað um 5þusundkall fyrir að tengjann i tölvu hjá þeim... og þetta er bmw verkstæðið á akureyri...

PostPosted: Thu 21. Dec 2006 06:56
by snorri320
þú hefur amk ekki farið yfir á tíma því þá væri bílinn alveg stopp, mitt skot væri á gamla/ónýta bensínsíu eða oxy/airflowsensor.

PostPosted: Thu 21. Dec 2006 08:18
by Djofullinn
Þar sem ég vinn við að þjónustu tölvur veit ég að nýir hlutir eru MJÖG oft bilaðir :lol: Þannig að ég myndi prófa aðra dælu þar sem þetta gerðist á sama tíma

Bjarnhéðinn

PostPosted: Thu 21. Dec 2006 09:37
by Prez
Já ég ætla að skipta um dæluna í dag. Sjá hvað gerist.

PostPosted: Thu 21. Dec 2006 09:46
by gstuning
Hvernig er bensínþrýstingurinn?

Hann á að vera cirka 50psi í svona nýlegum bíl held ég,

bensín

PostPosted: Thu 21. Dec 2006 10:36
by Prez
hérna segið mér, stóra bensínsían sem er undir bílnum hægra megin, er einhvernskonar "flow control" í henni?

PostPosted: Thu 21. Dec 2006 10:44
by Aron Fridrik
undir bílnum ? er hún ekki undir sætinu hægra megin aftur í ?

PostPosted: Thu 21. Dec 2006 11:12
by Hannsi
Jrourke wrote:undir bílnum ? er hún ekki undir sætinu hægra megin aftur í ?

bensín sían?
Hún er undir bílnum og dælan er undir sætinnu ;)

PostPosted: Thu 21. Dec 2006 11:15
by Aron Fridrik
Hannsi wrote:
Jrourke wrote:undir bílnum ? er hún ekki undir sætinu hægra megin aftur í ?

bensín sían?
Hún er undir bílnum og dælan er undir sætinnu ;)


ahh las vitlaust :oops:

PostPosted: Thu 21. Dec 2006 11:16
by ömmudriver
Hannsi wrote:
Jrourke wrote:undir bílnum ? er hún ekki undir sætinu hægra megin aftur í ?

bensín sían?
Hún er undir bílnum og dælan er undir sætinnu ;)


Og sætið er inní bílnum :rollinglaugh: EINKAHÚMOR

PostPosted: Thu 21. Dec 2006 12:29
by Hlynzi
Er dælu relay-ið aldrei að hrekkja þessa bíla ?