Page 1 of 1

E38 door lock stuck HJÁLP!..... Problem fixed

PostPosted: Thu 14. Dec 2006 21:13
by elli
Sælir,
ein aftur hurðin á E38 er föst í lás, og verra er að hún er opin. Kólfurinn sem snýst í læsingunni er fastur og ég get ekkert hreyft hann og þar með er læsingin lokuð en hurðin opin.

Þetta þarf að laga strax !! Hjálp :oops:

PostPosted: Thu 14. Dec 2006 21:29
by IngóJP
flatt skrúfjárn og ýta þessu þessu til baka bara

PostPosted: Thu 14. Dec 2006 21:30
by elli
IngóJP wrote:flatt skrúfjárn og ýta þessu þessu til baka bara

hefurðu lent í þessu? :) Eru ekki rofar í læsingunni? Ætla samt að fara út og prófa :)

PostPosted: Thu 14. Dec 2006 21:33
by IngóJP
bara á öðrum bílum ekki BMW kom mikið fyrir Volvo bílana

PostPosted: Thu 14. Dec 2006 21:37
by Elnino
þetta kom stundum fyrir á e-39 bílnum hennar mömmu.. prófaðu bara að ýta þessu inn, ég gerði það allavegana og það virkaði

PostPosted: Thu 14. Dec 2006 21:41
by elli
Búinn að prófa að lumbra aðeins á þessu með skrúfjárni, en djö þetta er fjandans FAST :twisted:

PostPosted: Thu 14. Dec 2006 21:49
by HAMAR
WD-40 og skrúfjárn ætti að redda þessu

PostPosted: Thu 14. Dec 2006 23:09
by íbbi_
þetta er það sama og hjá mér, nema hurðin er lokuð hjá mér, E38 eiga þetta víst dáldið til

PostPosted: Fri 15. Dec 2006 00:06
by elli
Þetta er allav. komið. Bjöggi kom og reddaði þessu fyrir mig. Við bunuðum bara heitu vatni á svæðið fyrir neðan læsinguna þá losnaði þetta eftir smá.
Er enginn staður til að komast að til að smyrja þetta?

PostPosted: Fri 15. Dec 2006 20:51
by íbbi_
já.. heppin að þetta skeði meðan hurðin var opin :evil:

PostPosted: Sat 16. Dec 2006 08:06
by elli
OOO já. Svo tók hann upp á þessu á bílastæði við smáralindina í gær. Ég varð að krjúpa fyrir kvikindinu og blása hann :oops: til að redda þessu.
En um leið og ég fæ nýju íbúðina mína (á þriðjudag) þá fer hann beint inn í skúr og verður þar þangað til allt NaCl er farið af götunum!

PostPosted: Sat 16. Dec 2006 10:45
by íbbi_
ég myndi nú bara skipta um skránna,

PostPosted: Sat 16. Dec 2006 11:32
by elli
Já ég var að lesa mig til um þetta á netinu að, betra væri að skipta um skránna strax heldur en að lenda í að hurðin vilji ekki opnast því þá þarf að rífa upp allt hurðaspjaldið = skemma það :?
Vonandi kemstu inn í þinn

PostPosted: Sat 16. Dec 2006 11:57
by íbbi_
þetta eru bara þannig bílar að maður vill hafa þetta í lagi 8) þú ert samt heppin að þetta sé að aftan ef hún festist, sjaldið þar fer alveg af án þess að hurðin sé opin, hinsvgegar sameinast hún mælaborðinu að framan, og það er BARA bras að ná því af,