Page 1 of 1

SOS - Kveikja í E36 320 1995

PostPosted: Sun 10. Dec 2006 21:33
by Prez
Ég er með 1995 320 með 6 in line og sér kveiki (coil) á hverjum cylender.

Ég var einn af þeim heppnu sem drekkti bílnum mínum undir mislægu gatnamótunum við smáralindina í gærkvöldi.. fór heim og reif allt ofanaf vélinni, og lét þorna vel. Svo setti ég saman nú áðan og setti í gang... og bévítans bíllinn gengur ekki á einum, þ.e cylender #4 og grunar mig coilið, það lítur út fyrir að hafa hitnað óeðlilega, allavega málningin sprungin utan af því.
Samt er ég ekki viss...
Er sér öryggi fyrir hvern cylender í tölvunni í þessum bílum, eða ætli kveikjuhausinn sé pottþétt farinn? Einhver sem hefur lent í svona svipuðu? Lumar einhver á þessu? Passar þetta af fleiri vélum?

Öll ráð vel þegin.

Mbkv, Hallmar

PostPosted: Sun 10. Dec 2006 22:14
by Bjarki
Tékkaðu hvort þeir gefa neista.
Losa þá upp og setja kerti á endan í jörð og starta. Svo útiloka þræðina og háspennukeflin.

neisti

PostPosted: Sun 10. Dec 2006 22:18
by Prez
Það kemur enginn neisti.

Á einhver svona hveikjuhaus?

PostPosted: Sun 10. Dec 2006 22:29
by ///M
Ég á svona til :)

PostPosted: Sun 10. Dec 2006 22:31
by Prez
///M, You got Pm!