Page 1 of 1

HJÁLP!!! bíllinn fer ekki í gang..

PostPosted: Wed 29. Nov 2006 19:27
by hjalmar87
hvað getur það verið þegar að bíllinn fer ekki í gang, hann startar en tekur ekki púst.. reyndi að heyra eitthvað hljóð í bensíndælunni en ekkert suð eða neitt, getur þetta verið hún?
hann er búinn að vera soldið seinn að koma sér í gang á morgnana og þannig(þegar ég meina seinn þá startar hann alveg nokkrum sinnum áður en hann fer í gang og þá er eins og hann þurfi að vinna sig upp í smá stund), hvað getur þetta verið?

PostPosted: Wed 29. Nov 2006 19:34
by finnbogi
ótrúlegt hve oft þetta getur bara verið lélegur/ónýtur rafgeymir

svo kannski startarinn :roll:

því betur sem þú getur lýst þessu því auðveldara fyrir okkur að benda þér á hvað þetta gæti verið :wink:

..

PostPosted: Wed 29. Nov 2006 19:39
by hjalmar87
já veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa því betur en á ekki að heyrast svona suð í bensíndælunni? þetta gerðist bara allt í einu að hann drap á sér á bílastæði í gær fór síðan aðeins í gang aftur og drap svo á sér.. þetta er eigilega allt sem ég get sagt ykkur, og líka það að rafgeymirinn er glænýr þannig að ekki er þetta hann:)

Re: ..

PostPosted: Wed 29. Nov 2006 20:04
by ValliFudd
hjalmar87 wrote:já veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa því betur en á ekki að heyrast svona suð í bensíndælunni? þetta gerðist bara allt í einu að hann drap á sér á bílastæði í gær fór síðan aðeins í gang aftur og drap svo á sér.. þetta er eigilega allt sem ég get sagt ykkur, og líka það að rafgeymirinn er glænýr þannig að ekki er þetta hann:)

hehe, þetta lýsir sér mjöööög svipað og minn...

Ég sest uppí, starta, en virkar eins og hann fái ekkert bensín... ég tek lykilinn úr.. bíð í 10 sek.. set í.. svissa á og þá heyri ég í bensíndælunni og hann þrusast í gang :)

menn segja það vera relay.. ætla að reyna að komast úr vinnu á morgun til að prófa það :)

PostPosted: Wed 29. Nov 2006 20:07
by aronjarl
gæti verið bensíndælan að gefa sig hvernig bíll er þetta og hvað er hann ekinn ?

PostPosted: Wed 29. Nov 2006 21:33
by gstuning
fyrst hann er búinn að vera lengi í gang uppá síðkastið er það líklega
dælan,

..

PostPosted: Wed 29. Nov 2006 22:57
by hjalmar87
já býst líka sterklega við að þetta sé dælan:)
kíki betur á þetta á morgun, læt ykkur vita hvernig gengur..
þetta er e34 89 árgerð.. og valli minn fer ekki einu sinni í gang;):(

...

PostPosted: Sun 03. Dec 2006 18:59
by hjalmar87
jæja það kom í ljós að þetta var dælan og redduðu skúrabræður mér:)
þakka þeim kærlega fyrir og vill taka fram að þeir eru toppgæjar og mjög sanngjarnir:)