Page 1 of 1
Að leggja bíl yfir veturinn

Posted:
Tue 28. Nov 2006 15:27
by Aron Andrew
Ég var að spá, þarsem að 325 bíllinn minn er bara kominn inn í skúr í vetrargeymslu, hvernig er best að hugsa um bílinn meðan hann er ekki í notkun?
Hversu reglulega er best að taka smá hring og hvort það er eitthvað sérstakt sem þarf að fylgjast með?
Re: Að leggja bíl yfir veturinn

Posted:
Tue 28. Nov 2006 15:36
by gstuning
Aron Andrew wrote:Ég var að spá, þarsem að 325 bíllinn minn er bara kominn inn í skúr í vetrargeymslu, hvernig er best að hugsa um bílinn meðan hann er ekki í notkun?
Hversu reglulega er best að taka smá hring og hvort það er eitthvað sérstakt sem þarf að fylgjast með?
þarf ekki nema að taka geyminn úr sambandi,
ef þú getur að setja hann á búkka svo hann standi ekki á dekkjunum og setja þá búkkanna undir spýtu kubb sem ýtir á spyrnurnar ,
skiptum um olíu þegar þú tekur hann út og það verða engin vandamál

Posted:
Wed 29. Nov 2006 01:07
by ömmudriver
Það sem mér var ráðlegt að gera við sjöuna þegar ég hugðist leggja henni yfir vetur

Skipta um olíu á vél bæði fyrir og eftir geymslu, fylla tankinn af bensíni og skella svo ísvara á hann líka(kemur í veg fyrir rakamyndun í tanknum og leiðslum) og svo það sem hann Gunni minnstist á hérna á undan; skella bílnum á búkka og helst taka dekkin af þannig það sé sem minnst álag á legur og svo framvegis. Og já hreyfa bílinn helst einu sinni í mánuði og helst oftar en það


Posted:
Wed 29. Nov 2006 01:18
by arnibjorn

Posted:
Wed 29. Nov 2006 01:47
by Arnarf
http://bmwe34.net/e34main/other/Winter_storage.htm
Þetta er svakalega góð síða, gildir náttúrlega sama fyrir alla bíla þarna

Posted:
Wed 29. Nov 2006 02:36
by Lindemann
Minn hefur nú bara fengið að standa úti hingað til....en það verður byrjað að vinna í honum fljótlega og svo kem ég honum inn.
Ætla bara að vera duglegur að taka rúnt á honum við hvert tækifæri sem færð leyfir(þegar er saltlaust og autt).

Posted:
Wed 31. Oct 2007 20:29
by Steinieini
Er ekki mál að endurvekja þennan þráð
Eru menn ekki með einhver sniðug ráð?
Ég heirði að það væri gott að bera mjallarbónið þykkt á og láta það standa á lakkinu..
Einnig held ég að það sé ljóst að best sé að vera með lítinn hita þar sem bíllinn er, nokkrar gráður yfir frostmarki til þess að ryðmyndun sé í lágmarki. Og auðvitað rakalítið umhverfi

Posted:
Wed 31. Oct 2007 20:36
by Bjarki
Ég hef oft sett bíla/vélar í gang eftir nokkur ár, ekkert mál. Bara yfirfara þetta létt, fá olíuþrýsting og svoleiðis.
Þá er ég að tala um hluti sem voru ekkert sérstaklega meðhöndlaðir fyrir geymslu.
....en náttúrlega eðlilegt að menn spái í svona þegar gullmolar fara í geymslu.

Posted:
Wed 31. Oct 2007 20:42
by jon mar
ég lagði mínum seinni part ágúst, keyrði bílinn inn, skrúfaði plöturnar af, læsti og fór.
Einfalt mál
En annars er bíllinn hreyfður það reglulega að ég var ekkert að setja hann á búkka, keyrður úr geymslu og inná verkstæði með nokkra vikna millibili.
Það skemmir hann varla meira en þegar hann stendur fyrir utan vinnuna.

Posted:
Thu 01. Nov 2007 10:54
by ValliFudd
Ég keypti ameríska druslu sem var búin að standa í 10+ ár... setti á hann bensín, skipti um rafgeymi og keyrði hann í burtu
Notaði hann í nokkra mánuði án mikilla vandræða..

Posted:
Fri 02. Nov 2007 11:58
by JonFreyr
Mér skilst til dæmis að fóðringar og annað sem inniheldur íhluti úr gúmmíi lifi betra lífi utandyra, á til að morkna í þurru og hlýju lofti. Þetta er bara eitthvað sem ég heyrði í sambandi við geymslu á dekkjum.....
Sel það ekki dýrara en ég keypti það.
Hins vegar er fullur tankur og búkkar góð hugmynd, ef geyma á bílinn í langan tíma að þá er sniðugt að yfirfara síur og olíu áður en bíllinn er tekinn aftur í notkun.

Posted:
Fri 02. Nov 2007 12:21
by siggir
Nú er ég með vél sem er búin að standa olíu- og vatnslaus, úti í 3-4 ár.
Á ég að prófa að setja í gang eða bara gleyma þessu strax?
