Page 1 of 1
stefnuljós

Posted:
Mon 27. Nov 2006 20:15
by Ketill Gauti
Það er eitt sem mig langar að vita hvort það sé bannað að láta stefnuljósin blikka hvítu ljósi þ.e.a.s verður stefnuljósið að vera annaðhvort appelsínugult eða rautt til þess að maður fái skoðun?

Posted:
Mon 27. Nov 2006 20:25
by moog
Keyptu bara appelsínugula stefnuljósaperu, þá þarftu ekki að hafa áhyggjur af þessu.

Posted:
Mon 27. Nov 2006 20:26
by Aron Andrew
Ég var alltaf með glærar perur í öllum ljósum í mínum e36, fékk allavegana skoðun þannig þetta hlítur að vera í lagi


Posted:
Mon 27. Nov 2006 20:49
by Ketill Gauti
moog wrote:Keyptu bara appelsínugula stefnuljósaperu, þá þarftu ekki að hafa áhyggjur af þessu.
jájá ég á alveg appelsínugular perur langaði bara að vita þetta

Aron Andrew wrote:Ég var alltaf með glærar perur í öllum ljósum í mínum e36, fékk allavegana skoðun þannig þetta hlítur að vera í lagi
En Aron getur það ekki bara farið eftir skoðunarstöðvum eða hvað?

Posted:
Mon 27. Nov 2006 20:50
by ValliFudd
Ketill Gauti wrote:moog wrote:Keyptu bara appelsínugula stefnuljósaperu, þá þarftu ekki að hafa áhyggjur af þessu.
jájá ég á alveg appelsínugular perur langaði bara að vita þetta

Aron Andrew wrote:Ég var alltaf með glærar perur í öllum ljósum í mínum e36, fékk allavegana skoðun þannig þetta hlítur að vera í lagi
En Aron getur það ekki bara farið eftir skoðunarstöðvum eða hvað?
þú ferð þá bara með þinn á sama stað og hann fór með sinn
Aron, hvar var það?


Posted:
Mon 27. Nov 2006 21:01
by Aron Andrew
Frumherja Hafnarfirði
Annars er nú ekki mjög mikið mál ef þú vilt hafa glærar perur og ert staddur einhverstaðar annar staðar að skella bara appelsínugulum perum í fyrir skoðun.

Posted:
Tue 28. Nov 2006 00:50
by Lindemann
skv. lögum eiga bílar að vera með appelsínugul stefnuljós allan hringinn..
Undantekning er ef um er að ræða amerískan bíl og þá megar stefnuljós að aftan vera rauð og að framan hvít...
Þannig að líklega sleppuru alveg með hvít að framan þar sem það er voðalega bjánalegt að gera upp á milli framleiðslulanda.
Ég slepp allavega með rauð að aftan.

Posted:
Tue 28. Nov 2006 01:14
by jon mar
Það er nú hægt að fá víða á bensínstöðvum perur sem eru bláleitar eða spegillitaðar en blikka appelsínugulu. Svo til bara á netinu sumstaðar og svona aukahlutabúðum.
Rakst á svoleiðis nú síðast í Esso hér á Akureyri.
Er mikið að spá í að skella mér á svoleiðis eftir að ég setti hvít stefnuljós að framan.

Posted:
Tue 28. Nov 2006 01:34
by bjahja
Það er líka hægt að spreya létt yfir appelsínugular perur með silfur spreyi. Virkar fullkomnlega, blikkar appelsínugult en er silfurlitað

Posted:
Tue 28. Nov 2006 01:52
by snorri320