Page 1 of 2

Rafgeymir og kælivökvi freyðir

PostPosted: Fri 24. Nov 2006 12:58
by Orri Þorkell
er að pæla hvar rafgeymirinn sé í e32 730i. var að reyna ná aftursætunum upp en var ekki alveg að fatta hvernig þetta er smellt af.
Er reyndar að pæla líka með kælivökvann, hann freyðir alltaf, svo þarf ég oft að bæta á hann. hvað gæti það verið?

Re: Rafgeymir

PostPosted: Fri 24. Nov 2006 13:18
by gstuning
Pappas 730i wrote:er að pæla hvar rafgeymirinn sé í e32 730i. var að reyna ná aftursætunum upp en var ekki alveg að fatta hvernig þetta er smellt af.


geymirinn er þar samt,

PostPosted: Fri 24. Nov 2006 14:01
by elli
togar í bekkinn að framan þar sem lappirnar liggja út af. Ekki nema bílinn þinn sé með rafmagni í aftursætum þá er það erfiðara.

http://www.e38.org/e32
Prófaðu þetta.

PostPosted: Fri 24. Nov 2006 14:10
by íbbi_
ég hef enga trú á að það séu rafstýrð aftursæti í m30 bíl,

kipptu bara þéttingsfast í sætið án þess að fara út í einhverja geðveiki og það poppar upp, geymirinn er akkurat undir analnum á þeim sem situr farþegamegin aftan í.

ef þú ert að reyna gefa honum start er póll framan í honum, á demparaturninum bílstjóramegin

PostPosted: Mon 27. Nov 2006 12:40
by Orri Þorkell
já tók eftir því, þakka fyrir upplýsingarnar

PostPosted: Mon 27. Nov 2006 13:48
by IceDev
Pappas 730i wrote:já tók eftir því, þakka fyrir upplýsingarnar


http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=17416

Ætti að vera svipað, gott að taka rétt á bekknum

PostPosted: Mon 27. Nov 2006 14:20
by gstuning
Já ef það bubblar í kælivökvanum þá er nokkuð víst að heddpakkning er að fara eða heddið sprungið, láttu athuga það ASAP!!!!!!

PostPosted: Mon 27. Nov 2006 14:38
by íbbi_
í m30 kæmi sprunga í heddi ekki á óvart

PostPosted: Mon 27. Nov 2006 18:31
by ömmudriver
íbbi_ wrote:í m30 kæmi sprunga í heddi ekki á óvart


Hehehe......NO SHIT :lol:

PostPosted: Wed 29. Nov 2006 08:10
by Orri Þorkell
ok.... það er bara svona hóst hóst.....
hefði betur farið með hann í arctic trucks í ástandsskoðun áðuren ég keypti hann. hann sagði hann væri alveg í 100% standi, síðan þá er ég búin að eyða 180 þús í ýmsar viðgerðir og varahluti.
En er mjög dýrt að skipta um hedd?

PostPosted: Wed 29. Nov 2006 08:27
by stebbihall
heddið fór í mínum e32,ég fór með hann i TB en að vísu var knassdásinn líka farinn hja mer,þetta var viðgerð uppá rétt um 300 þús kjell

PostPosted: Wed 29. Nov 2006 08:49
by elli
Ég tók:
notað hedd + nýjan kambás + rokkera+ pakkningar vinnuna gerði ég sjálfur þetta gerði ca. 150 þúsund. Þetta er auðvitað lítið mál EF þú finnur notað hedd :?

PostPosted: Wed 29. Nov 2006 09:22
by íbbi_
málið er líka bara að þetta er 7 línu bimmi.. eftir að hafa átt 3 slík verkfæri hef ég komist af nokkrum hlutum um lífið..

nr1, þetta er þægilegra og betra í akstri en flest allt annað sem þú átt mögulega eftir að setjast í eða keyra þann tíma sem þú átt bílin,

nr2, þetta sooogar af þér peninga eins og gráðugur kvennmaður, hvort sem það er í bensín eða viðhald, ef þú ert ekki tilbúin í það seldu hann strax og fáðu þér annan bíl.


já hedd getur verið dýrt spaug, það er spurning hvort það liggji á lausu m30 hedd hérna heima? en annars er eflaust ebay "vinur þinn"

PostPosted: Wed 29. Nov 2006 09:39
by ömmudriver
Ég leitaði að M30B35 heddi hérna fyrir um ca. mánuði og engin partasala átti þetta til né nokkur annar :x Fann tvö hedd á ebay, annarsvegar eitt úti í Þýskalandi og annað út í bretlandi. Í báðum tilfellum var ég hæst bjóðandi en hvorugur seljandinn vildi senda/selja þetta á klakann :evil: Ég ákvað því að kaupa hedd frá Schmeidermann sem ég er einmitt að bíða eftir eins og er.

PostPosted: Wed 29. Nov 2006 17:06
by Orri Þorkell
ætla láta kíkja á þetta, líst ekkert á þetta því ég veit að knástásinn er ekkert í toppstandi heldur.