Page 1 of 1
730i '87 í verkfalli *>> Fixed <<*

Posted:
Sat 11. Nov 2006 13:44
by Farmer
Bíllinn hjá mér vildi ekki fara í gang einn daginn.
Það koma eftirfarandi skilaboð í mælaborðinu: "oeldruck sensor, betriebsanleitg"
Ég er búinn að leita í gegnum Google og hér á spjallinu en hef ekki fundið neitt sem gagnast almennilega. Þó tel ég að þetta sé skynjari aftan á ventlalokinu. Flestar síður um þetta á Google eru á rússnesku eða samb. tungumáli.
Væri alveg magnað ef einhver hérna vissi meira um þetta.

Posted:
Sat 11. Nov 2006 16:18
by HAMAR
Olíu þrýstings skynjari, sennilega ekki nægur þrýstingur á olíunni, olíudælan að gefa sig eða skynjarinn úti.
Vantar nokkuð olíu á vélina ?

Posted:
Sat 11. Nov 2006 17:21
by srr
betriebsanleitg = betriebsanleitung
Á íslensku, notendahandbók (þeas owners manual)

Posted:
Sun 12. Nov 2006 14:47
by Farmer
Takk fyrir svörin.
Það er nóg olía á vélinni og hún lítur vel út.
Handbókin segir: Oil pressure sensor: defective, contact BMW service.
Þetta er priority 3 skilaboð. Semsagt ekki critical.
En getur þessi villa valdið því að bíllinn fari ekki í gang?

Posted:
Sun 12. Nov 2006 15:48
by srr
Ég myndi telja það líklegt.
Sökum þess að ef skynjarinn er ónýtur, þá getur hann ekki sagt þér að
olíuþrýstingurinn sé í lagi og það hlýtur að vera critical.
Mín ágiskun væri að rúlla bílnum í TB og láta líta á þetta.

Posted:
Sun 12. Nov 2006 21:07
by íbbi_
ég myndi halda ekki.
er þetta ekki mjög algengt í m20 og m30, er ekki skynjarinn í heddinu?

Posted:
Sun 12. Nov 2006 21:13
by Bjarki
-mæla merkið frá skynjaranum
-mæla olíuþrýstinginn á vélinni með olíuþrýstingsmæli.
Þá veistu hvað er að valda þessu.

Posted:
Sun 12. Nov 2006 21:37
by gstuning
íbbi_ wrote:ég myndi halda ekki.
er þetta ekki mjög algengt í m20 og m30, er ekki skynjarinn í heddinu?
skynjarinn er í blokkinni á m20 og er alls ekki algengt
af því sem ég þekki M20

Posted:
Sun 12. Nov 2006 23:22
by Bjarki
skynjarinn er bara jörð eða ekki jörð.
þrýstingur idle: 0,5 bar (7psi)
at maximum engine speed: 5 bar (73,5psi)

Posted:
Sun 04. Feb 2007 01:05
by Farmer
Ég fékk bara nýjan skynjara í B&L. Þá fór hann strax í gang.


Posted:
Sun 04. Feb 2007 01:40
by srr
Farmer wrote:Ég fékk bara nýjan skynjara í B&L. Þá fór hann strax í gang.

Til hamingju með það
Alltaf gaman þegar það er góður endir.

Posted:
Sun 04. Feb 2007 22:28
by Orri Þorkell
þetta kom nokkrum sinnum hjá mér en kom síðan aldrei aftur, "skúra bjarki" var að tala um að olían næði einstaka sinnum að fara á einhverja staði þar sem hún ætti ekki að vera í m30 vélinni og þar af leiðandi væri tímabundið of lítill þrýstingur bara í startinu eða fyrst, bara að bíða í smastund. kann samt ekki alveg að útskýra þetta


Posted:
Tue 06. Feb 2007 23:34
by Farmer
Það var afskaplega góð tilfinning að setja hann í gang aftur og taka rúntinn.
