Page 1 of 1

Magnaður skítur

PostPosted: Wed 18. Oct 2006 23:20
by ///MR HUNG
Setti X Pípu undir M5 í dag og eignaðist nýjann bíl á staðnum.
Flottara sound og bíllinn bara skemmtilegri í akstri enn það sem kom mest á óvart var að vélarljósið mitt slökknaði :lol:

Lét lesa af honum í sumar og þá sagði talvan að það væri farinn pústskynjari og ég bara ok skiptir ekki því það var enginn munur á bílnum eftir að ljósið kveiknaði.
Sem sagt..Henda kút undan og henda ljósinu í leiðinni...Og allir sáttir 8)

Getur einhver frætt mig um hvernig á þessu stendur :roll:

PostPosted: Wed 18. Oct 2006 23:35
by IceDev
Það er einn skynjari í pústinu ef ég man rétt, kannski að það hafi verið sambandsleysi eða eitthvað?

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 00:44
by ///MR HUNG
IceDev wrote:Það er einn skynjari í pústinu ef ég man rétt, kannski að það hafi verið sambandsleysi eða eitthvað?
Skynjararnir eru fremst við hvarfana enn ég henti kútnum sem er við drifið.

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 09:00
by saemi
Það eru 4 skynjarar. 2 fyrir framan hvarfana og 2 fyrir aftan.

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 18:38
by Hannsi
///MR HUNG wrote:
IceDev wrote:Það er einn skynjari í pústinu ef ég man rétt, kannski að það hafi verið sambandsleysi eða eitthvað?
Skynjararnir eru fremst við hvarfana enn ég henti kútnum sem er við drifið.

ekki eitthvað líkt Þessu?

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 19:38
by ///MR HUNG
Þessi djöfull er kominn í ruslið.

(Resonator)R.I.P.
Image

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 19:43
by ///MR HUNG
Stutt gleði...Auðvitað kviknaði helvítis ljósið aftur í dag :lol:

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 19:55
by bimmer
///MR HUNG wrote:Stutt gleði...Auðvitað kviknaði helvítis ljósið aftur í dag :lol:


Ertu búinn að láta lesa af bílnum hjá BogL?

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 20:08
by ///MR HUNG
Elskurnar í TB gerðu það í sumar og þá var það pústskynjari.
Hef bara ekkert verið að pæla í því að skipta um hann því það er enginn munur á bílnum svona..Svo kostar hann alveg 13 kjall fyrir utan afslátt :lol:

PostPosted: Fri 20. Oct 2006 00:04
by Lindemann
líklega er það þá pústskynjarinn fyrir aftan hvarfa sem er að kveikja ljósið afþví hann er að lesa vitlaust þegar hvarfinn er farinn. Ef hann les það sama og fremri skynjarinn, þá skynjar hann að hvarfakúturinn sé ekki að virka rétt og kveikir check engine ljósið(hefur engin áhrif á mótorinn).
Það ætti að vera hægt að plata tölvuna með því að setja viðnám frá skynjaranum. Þá heldur tölvan að hvarfinn sé til staðar og í lagi.

Ef þetta er fremri skynjarinn sem kveikir ljósið, þá er tölvan bara að áætla bensínmagnið inná mótorinn og getur því verið að gefa vitlausa blöndu(ekki bestu blönduna). Kannski finnst enginn munur en eyðslan getur aukist við sumar aðstæður.

PostPosted: Fri 20. Oct 2006 00:14
by ///MR HUNG
Hvarfarnir eru enn í bílnum,Resonatorinn er farinn í ruslið.

PostPosted: Fri 20. Oct 2006 00:18
by Lindemann
núnú...þá er ég bara pass.

Sögðu þeir þér ekkert hvaða súrefnisskynjari þetta væri?

PostPosted: Fri 20. Oct 2006 00:55
by ///MR HUNG
Lindemann wrote:núnú...þá er ég bara pass.

Sögðu þeir þér ekkert hvaða súrefnisskynjari þetta væri?
Jú ég man ekkert hvor það var...Fannst bara svo fyndið að hann hafi slökkt ljósið við að taka þennann ógeðslega kút undann.

Nú segir gamla að ég sé búinn að eyðileggja bílinn því það heyrist svo hátt inn í hann,,,,,Svekkjandi :mrgreen:

I love it :naughty:

PostPosted: Fri 20. Oct 2006 09:09
by íbbi_
///MR HUNG wrote:
Lindemann wrote:núnú...þá er ég bara pass.

Sögðu þeir þér ekkert hvaða súrefnisskynjari þetta væri?
Jú ég man ekkert hvor það var...Fannst bara svo fyndið að hann hafi slökkt ljósið við að taka þennann ógeðslega kút undann.

Nú segir gamla að ég sé búinn að eyðileggja bílinn því það heyrist svo hátt inn í hann,,,,,Svekkjandi :mrgreen:

I love it :naughty:


haha.. vinkona mín heldur því sama fram um camaroin.. "nú hljómar hann eins og druslahh"

PostPosted: Fri 20. Oct 2006 09:25
by jens
Hef heyrt þetta líka, það halda allir að bílinn minn sé með ónýtt púst.